Fréttir

Miðvikudaginn 30. janúar lokað í dag.

Kl 14:00 Það verður lokað í dag vegna aðstæðna, tæki og tól eru illa frosin föst. Hér hefur verið snarvitlaust veður í 3 daga. Nú hefði verið gott að vera með aðstöðu til að geyma troðara inn.  Jæja nú eru hlutirnir að gerast og veðrið að ganga niður. Veðrið kl  12:00 ANA 10-17m/sek þannig að enn er of hvasst. Erum með opnun í skoðun í dag. Það er verið að moka veginn og unnið er að koma svæðinu í gang eftir þetta aftaka veður sem hefur ekki farið fram hjá neinum. En það hefur komið töluverður snjór í gil og lautir en rifið allan snjó í hlíðum, hann hefur allur fokið í burtu í þessu mikla stormi og er sennilega kominn inn á hálendið. Stefnum á að opna kl 16:00 Nýjar upplýsingar um kl 15:00 Starfsmenn

Þriðjudaginn 29. janúar lokað

Skíðasvæðið er lokað í dag vegan veðurs. Veðið kl 12:00 ANA 15-20m/sel og 25-30m/sek í hviðum. Þessu leiðinda veðri er að slota og framundan eru bjartir og góðir dagar. Brettahátíð er framundan 1-3 febrúar, það verður sýning í bænum og brettalistir/keppni í Skarðsdalnum 4. brauta keppni, pallar og fl. Tökum stöðuna um hádegisbilið á morgun. Starfsmenn

Mánudaginn 28. janúar lokað vegna veðurs

Skíðasvæðið verður lokað í dag vegna veðurs. Veðrið kl 12:00 ANA 10-18m/sek og 25-30m/sek í hviðum, frost 1 stig og slydda. Það verður leiðinda veður til miðvikudags í þessari viku en þá fer þetta að lagast og þá kemur austan og suðaustan áttin aftur með allri sinni dýrð. Takið frá næstu helgi það verður mikið fjör í Skarðsdalnum. Starfsmenn

Sunnudaginn 27. janúar lokað vegan veðurs

Í dag verður skíðasvæðið lokað vegna veðurs. Veðrið kl 12:00 NE 17-24m/sek, hviður upp í 35m/sek, 0 stig og lítilsháttar úrkoma. Veðrið síðasta sólahringinn hefur verið mjög slæmt hér á Siglufirði ANA 20-30m/sek og hviður 40-50m/sek. Ein hviða fór upp í 50,1m/sek á skíðasvæðinu kl 04:54, þetta er jú kallað mannskaða veður. Mér sýnist veðrið hér á Siglufirði hafa verið eina verst á landinu enda er þessi átt ANA fræg fyrir leiðindi. Tökum stöðunna á morgun kl 10:00 Starfsmenn Það verður mikið um að vera næstu helgi, fylgist vel með.

Laugardaginn 26. janúar lokað vegna hvassviðris

Skíðasvæðið verður lokað í dag vegna hvassviðris. Veðrið kl 13:00 NA 8-15m/sek og 20-23m/sek í hviðum, frost 1 stig og töluverður skafrenningur. Veðurspá gerir ráð fyrir vaxandi vindi þegar líður á daginn og er útlitið á morgun sunnudaginn 27. janúar er ekki gott. Nýjar upplýsingar kl 09:00 á morgun. Þetta léttir lund, hlustið á þetta "Sem Lindin tær" http://www.youtube.com/watch?v=e1IPJLH4W0U Starfsmenn

Föstudaginn 25. janúar opið kl 14-19

Flottur dagur og flott færi í dag. Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 14-19, veðrið kl 17:00 SW 1-4m/sek, frost 1 stig og heiðskírt. Það hefur snjóað aðeins hjá okkur þannig að færið er mun betra fyrir brettin en hefur verið, reyndar er frábært færi fyrir alla. Föstudaginn 25. janúar er opnun í skoðun. Veðrið kl 10:00 SV 4-15m/sek, frost 1 stig og lítilsháttar él. Það er töluvert blint á svæðinu. Nýjar upplýsingar um kl 13:00 Starfsmenn

Fimmtudaginn 24. janúar opið kl 15-20

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 15-20, veðrið kl 18:20 austan 7-12m/sek, 0 stig og alskýjað. Færið er unnið harðfenni. Nú er vefmyndavélin og veðurstöðin komin í lag.   Velkomin í fjallið Starfsmenn

Miðvikudaginn 23. janúar opið kl 15-19

Í dag er skíðasvæðið opið frá kl 15-19, veðrið kl 10:30 A gola, 0 stig og heiðskírt. Færið er unnið harðfenni. Velkomin í fjallið starfsmenn

Mánudaginn 21. janúar opið kl 15-19

Kl 19:00 nú höfum við lokað í dag og opnum aftur á miðvikudaginn 23. janúar kl 15:00 Í dag verður skíðasvæðið opið frá kl 15-19, veðrið kl 15:30 A 0-3/sek, hiti 3 stig og heiðskírt, færið er unnið harðfenni. Brekkurnar eru eins og flaugel og mjúkar sem silki. Velkomin í Skarðsdalinn  Starfsmenn  

Sunnudaginn 20. janúar opið kl 10-16

 Í dag verður opið frá kl 10-16, veðrið kl 10:50 SSA 1-4m/sek, hiti 2 stig og heiðskírt, færið er unnið harðfenni. Það er nokkuð hart færi en búið er að brjóta upp allar brekkur.  Skiptihelgi 19-20 janúar vetrarkortshafar frá Sauðárkróki, Siglufirði, Ólafsfirði, Dalvík og Akureyri geta framvísað þeim og fengið aðgang í fjöllin nú um helginna.  Snjór um víða veröld sunnudaginn 20. janúar. Frítt fyrir börn upp að 18 ára og 20% afsláttur af búnaði.  Velkomin í Skarðsdalinn starfsmenn