Sunnudaginn 20. janúar opið kl 10-16

Allir á skíði sunnudaginn 20. janúar
Allir á skíði sunnudaginn 20. janúar
 Í dag verður opið frá kl 10-16, veðrið kl 10:50 SSA 1-4m/sek, hiti 2 stig og heiðskírt, færið er unnið harðfenni. Það er nokkuð hart færi en búið er að brjóta upp allar brekkur.


 Skiptihelgi 19-20 janúar vetrarkortshafar frá Sauðárkróki, Siglufirði, Ólafsfirði, Dalvík og Akureyri geta framvísað þeim og fengið aðgang í fjöllin nú um helginna. 


Snjór um víða veröld sunnudaginn 20. janúar. Frítt fyrir börn upp að 18 ára og 20% afsláttur af búnaði. 


Velkomin í Skarðsdalinn starfsmenn