02.03.2010
Skíðasvæðið opnar aftur á morgun 3. mars kl 13-19, nú er að skella á vetrarfrí hjá Grunnskólanum á Siglufirði
frá miðvikudegi -föstudags, að því tilefni ætlum við á skíðasvæðinu að bjóða upp á kennslu fyrir
ykkur krakkar miðvikudaginn 3. mars og fimmtudaginn 4. mars frá kl 13:00-15:00. Ath við lánum ykkur búnað.
Færið í fjallinu er frábært nýr snjór yfir öllu, svæðið er búið að vera opið í 56 daga frá 5.
desember og gestir eru komnir yfir 4. þúsund og eru miklar fyrirspurnir fram yfir páska.
Ath. það eru veitingar seldar á öllum dögum sem opið er og nú er um að gera að drífa sig í bíltúr upp
í fjall og fá sér kaffibolla eða eitthvað annað.
Sjáumst hress í fjallinu
01.03.2010
Skíðasvæðið er opið í dag frá kl 13-18, veður og færi er frábært S-gola, frost 5 stig og heiðskírt, færið er
troðinn nýr snjór og allar brekkur klárar, allar lyftur verða í gangi, göngubraut á Hólssvæði
Velkomin á skíði starfsfólk
28.02.2010
Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 10-16, veður N-gola, frost 2 stig, og léttskýjað, færið troðinn
þurr snjór frábært færi fyrir alla, allar lyftur keyrðar, við setjum í gang Neðstu-lyftu og T-lyftu kl 10:00 en Búngu-lyftan fer
í gang 11:30.
Það er göngubraut klár á Hólsvæðinu svo nú er um að ger að drífa sig út og á skíði og njóta
dagsins.
Starfsfólk
27.02.2010
Skíðasvæðið opnar í dag kl 12-17, veðri kl 08:30 NA 5-7m/sek, frost 3 stig, smá éljagangur og alskýjað. færið er troðinn
nýr snjór það hefur snjóað töluvert hjá okkur við opnum Neðstu-lyftu og T-lyftu í dag, Búngu-lyftan er biluð.
Ps Við setjum Neðstu-lyftu og T-lyftu í gang kl 10:00 á morgun Sunnudaginn 28. febrúar og Búngu-lyftu kl 11:30
Velkomin í fjallið starfsmenn
26.02.2010
Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 15-19, veðrið kl 10:00 NV 2-4m/sek, frost um 8 stig og alskýjað, færið er
troðinn nýr snjór, það hefur snjóað töluvert hjá okkur.
Við opnum Neðstu-lyftu og T-lyftu í dag, velkomin í fjallið
25.02.2010
Í dag er skíðasvæðið lokað vegna veðurs, það er 10-15m/sek og meira í hviðum, 10 stiga frost og töluverður éljagangur,
en það er það jákvæða við þetta veður að við eru að fá töluverðan snjó á allt svæðið,
við opnum á morgun kl 14-19, nánari upplýsingar á morgun um kl 10:00, veður útlit fyrir helginna er ágætt.
Velkomin í Siglfirsku alpana
Starfsfólk
24.02.2010
Skíðasvæðið verður lokað í dag vegna veðurs, það er 9,5m/sek og meira í hviðum, frosti um 6 stig og smá éljagangur en
nokkuð blint.
Við opnum á morgun fimmtudaginn 25. febrúar kl 15-19, nánari upplýsingar um kl 12 á morgun, veðurspá næstu daga er ágætt.
Starfsmenn
23.02.2010
Skíðasvæðið er lokað í dag, við opnum á morgun miðvikudaginn 24. febrúar kl 15-19, nánari upplýsingar um kl 12:00 á
morgun.
Starfsfólk
22.02.2010
Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 14-18, veðrið NA 4-7m/sek, smá éljagangur, frost 6 stig og alskýjað,
færið er troðinn nýr snjór mjög gott færi fyrir alla, allar lyftur keyrðar.
Nú höfum við tekið í notkun nýja veðurstöð hér í Skarðsdalnum til að bæta en veðurþjónustu á
svæðinu í samstarfi við sksiglo.is Veðurstöðin Skarðsdal en hún er í 275 metra hæð beint fyrir ofan
Skíðaskálan og er hægt að fara inn á hana hér til hægri fyrir ofan mynd augnabliksins.
Velkomin á skíði í dag starfsmenn
21.02.2010
Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 10-16, veðrið kl 08:00 NA 3-6m/sek, frost 4 stig og léttskýjað, færið er
mjög gott nýr troðinn snjór og allar lyftur keyrðar.
Brekkur sem eru inni Neðstabrekka, T-brekka, Stálmasturbrekka, Búngubrekka, Innrileið á Búngusvæði og það er hægt að
skíða mjög víða í púðursnjó.
Svæðið er búið að vera opið í 51 dag frá 5. desember, gestir í fjallinu í gær voru um 370 manns sem er
frábært, skíðagestir góðir velkomnir aftur á Siglufjörð
Starfsmenn