14.02.2018
Svona til upplýsinga þá fer lognið nokkuð hratt yfir núna 40,2m/sek kl 15:15
Það verður lokað í dag vegna hvassviðris. Lognið fer heldur hratt í dag. Veðurútlit þegar þessum degi sleppir er gott.
Það hefur snjóað aðeins á svæðinu og erum við að vinna úr því og líta brekkur mjög vel út.
Í vetrarfríinu borgar sig að koma í Fjallabyggð, skíði, sund og veitingar, gisting á heimsmælikvarða.
Velkomin í Fjallabyggð
13.02.2018
Það verður lokað í dag vegna hvassviðris, veðrið kl 15:00 ANA 5-25m/sek, hiti 2 stig en léttskýjað.
Nú fer vonandi þessi veðurkafli að taka enda. Veðurkortin líta ljómandi vel út frá næsta fimmtudegi og vel fram í næstu viku.
Nýjar upplýsingar á morgun kl 10:00
12.02.2018
Opið í dag frá kl 14-19, veðrið kl 11:00 er WSW 5-12m/sek, frost 4 stig og léttskýjað en það á að lægja og létta til þegar líður á daginn. Færið er troðinn þurr snjór, það hefur skafið aðeins nýjan snjó í brautir.
Hólsgöngubraut tilbúin kl 14:00 2 km hringur.
Velkomin á skíði
11.02.2018
Það verður lokað í dag vegna hvassviðris, því miður lægir ekki vind fyrr en líður á daginn.
Nýjar upplýsingar á morgun kl 10:00
10.02.2018
Það verður lokað í dag vegna veðurs og tökum við glöð á móti snjónum sem vonandi kemur í dag. Morgundagurinn lítur mjög vel út og opið verður frá kl 12:00-16:00
Nýjar upplýsingar kl 09:00 í fyrramáli.
09.02.2018
Opið í dag frá kl 16-19, veðrið er SW 2-18m/sek en vonandi lægir þegar líður á daginn, frost 2 stig og léttskýjað.
Færið er troðinn þurr snjór
Velkomin í Skarðsdalinn
08.02.2018
Opið dag frá kl 13-19, veðrið kl 15:30 WSW 8-12m/sek en á að lægja þegar líður á daginn, frost 5 stig og léttskýjað. Færið er troðinn þurr snjór.
Hólsgöngubraut tilbúin kl 14:00 3 km hringur.
Velkomin á skíði
07.02.2018
Opið í dag frá kl 14-19, veðrið kl 17:00 WNW 2-15m/sek, frost 2 stig og léttskýjað. Færið er troðinn þurr snjór, það hefur snjóað aðeins í nótt.
Göngubraut tilbúin á Hólssvæði kl 15:00 3 km hringur.
!!Vantar skíðakennara á skíðasvæðið!!
06.02.2018
Það verður lokaðí dag, nýjar upplýsingar á morgun kl 10:00
Ath. á skíðasvæðið vantar skíðakennara
05.02.2018
Lokað í dag vegna hvassviðris.
Nýjar upplýsingar á morgun kl 10:00