Fréttir

Mánudaginn 5. febrúar lokað/closed

Lokað í dag vegna hvassviðris. Nýjar upplýsingar á morgun kl 10:00

Hann er rennilegur, hann er fagur en mjúkur

Skarðsdalurinn mun taka vel á móti ykkur í vetur. !!!!Allt til alls!!!! Veitingahús, sundlaugar, hótel, gistiheimili á heimsmælikvarða. Velkomin í Fjallabyggð

Sunnudaginn 4. febrúar lokað/closed

Það verður lokað í dag vegna hvassviðris, sunnan rok og 10 stig hiti. 13 stiga hiti er vestan við Strákagöng kl 08:00. Svona er Ísland í dag. Þegar þessum degi sleppir verður flott veður hjá okkur, frost næstu 8-9 daga.

Laugardaginn 3. febrúar lokað/closed

Það verður lokað í dag vegna hvassviðris SW 8-15m/sek og hviður 18-25m/sek og fylgir þessu töluverður skafrenningur. Verður þetta veður svona í allan dag. Nýjar upplýsingar á morgun kl 08:00

Föstudaginn 2. febrúar opið/open 14-19

Opið í dag frá kl 14-19, veðrið kl 14:40 SA gola, hiti 3 stig og alskýjað, en það kólnar og léttir til og verður orðið heiðskírt kl 16:00. Færið er troðinn rakur snjór. 5 brekkur klárar. Göngubraut er tilbúin á Hólssvæði 3 km hringur  Velkomin á skíði í dag

Fimmtudaginn 1. febrúar opið/open 14-19

Opið í dag frá kl 14-19, veðrið er WSW gola, frost 5 stig en alskýjað. Færið er troðinn þurr snjór, en það hefur snjóað 15-20 sm á síðasta sólahring þannig að færið er rennilegt og mjúkt. Göngubraut verður tilbúin kl 14:00 á Hólssvæði 3 km hringur. Velkomin á skíði í dag.

Miðvikudaginn 31. janúar lokað/closed

Lokað í dag, opnum á morgun kl 14:00. Nú erum við að taka á móti snjó til brúks næstu daga. Nýjar upplýsingar kl 10:00 á morgun.

Þriðjudaginn 30. janúar opið/open 14-19

Opið í dag frá kl 14-19, veðrið kl 17:00 austan gola, frost 3 stig og heiðskírt. Færið er troðinn þurr snjór, það verður flott veður og færi í dalnum í dag. Göngubraut tilbúin á Hólssvæði 3 km Velkomin á skíði 

Mánudaginn 29. janúar opið/open 14-19

Opið í dag frá kl 14-19, veðrið kl 17:00 WSW 5-12m/sek, frost 1-3 stig og heiðskírt. Færið er troðinn þurr snjór. Flott veður og færi í dag. Ath. það verður opið á morgun þriðjudaginn 30. janúar en lokað á miðvikudaginn 31. janúar en þá ætlum við að taka á móti nýjum snjó. Og svo opnum við á fimmtudaginn 1. febrúar á glænýja fönnina. Göngubraut er tilbúin á Hólssvæði 3 km. Velkomin á skíði í dag

Sunnudaginn 28. janúar opið/open 11-16

Opið í dag frá kl 11-16, veðrið kl 15:15 vestan gola , frost 1-2 stig og heiðskírt. Færið er troðinn þurr snjór, flott veður og færi í dag. Fyrsti sólardagur er í dag og mun sú gula skína á toppa fjallanna............ 6 brekkur klárar og æfintýraleið, hólabrautir og fl og fl Göngubraut tilbúin á Hólssvæði 3 km. !!Að gefnu tilefni er bent á að öll umferð snjósleða og annara tækja er með öllu óheimil á skíðasvæðinu!!