Fréttir

Aðfangadagur 24. desember lokað vegna veðurs

Í dag aðfangadag er lokað vegna veðurs, opnum aftur á annan í jólum kl 14:00. Starfsmenn skíðasvæðisins óska öllum gleðilegra jóla, sjáumst hress í Skarðsdalnum á anna í jólum 26. desember. Egill, Óðinn og Kári Sjáið dalinn fallega http://siglo.is/is/news/skidasvaedid_a_siglufirdi_1/ Opnunartími um hátíðinna 23.des Þorláksmessudag kl 14-17   24.des Aðfangadagur  kl 11-14   25.des Jóladagur   Lokað     26.des Annar í jólum   kl 12-16   27.des Þriðjudaginn   kl 14-19   28.des Miðvikudaginn   kl 14-19   29.des Fimmtudaginn kl 14-20   30.des Föstudaginn kl 14-20   31.des Gamlársdagur   kl 11-14   1.jan Nýársdagur   Lokað  

Þorláksmessudagur 23. desember opið kl 14-17

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 14-17, veðrið kl 13:30 SV 4-10m/sek, mesta hviða í dag kl 11:45 23,5m/sek, frost 4 stig, léttskýjað, færið er mjög gott troðinn nýr snjór. Opnunartími yfir hátíðina 23.des Þorláksmessudag kl 14-17   24.des Aðfangadagur  kl 11-14   25.des Jóladagur   Lokað     26.des Annar í jólum   kl 12-16   27.des Mánudaginn   kl 14-19   28.des Þriðjudaginn   kl 14-19   29.des Miðvikudaginn kl 14-20   30.des Fimmtudaginn kl 14-20   31.des Gamlársdagur   kl 11-14   1.jan Nýársdagur   Lokað Veðurspá er nokkuð ótrygg en svona lítur hún út fyrir daginn og aðfangadag. Suðvestan 8-15 m/s og él. Frost 0 til 7 stig. Snýst í norðan 18-23 með snjókomu á morgun, mun hægari og él um kvöldið. Spá gerð: 23.12.2011 11:10. Gildir til: 25.12.2011 00:00. Fróðleiksmoli dagsins: http://is.wikipedia.org/wiki/Siglufj%C3%B6r%C3%B0ur

Fimmtudaginn 22. desember opið kl 16-19

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 16-19, veðrið kl 14:00 SV gola, frost 2 stig og léttskýjað, færið er harðpakkaður ný snjór, mjög gott  færi fyrir alla. Velkomin í fjallið Starfsmenn

Miðvikudaginn 21. desember opið kl 16-20

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 16-20, veðrið kl 14:00 SA 1-3m/sek, frost 2 stig og léttskýjað, færið er mjög gott harðpakkaður snjór í öllum brekkum. Ath veðurspá er ótrygg, gætum þurft að loka með stuttum fyrirvara. Velkomin í fjallið starfsmenn  

Þriðjudaginn 20. desember lokað

Skíðasvæðið er lokað í dag, opnum aftur á morgun miðvikudaginn 21. desember kl 16-20. Nýjar upplýsingar kl 14:00 á morgun Minni á vetrarkortasölunna, það borgar sig að kaupa vetarkort, sjá gjaldskrá hér að neðan. Vetrarkortasala í fullum gangi  2011-2012:                                                                Barnakort  8-18 ára                                                  Kr. 7.000.-               Fullorðnir                                                                    Kr. 15.000.-             Hjónakort                                                                    Kr. 28.000.-                                Ef keypt eru fleiri en 2 kort, er 10% afstáttur af 3 korti og 15% af 4 korti eða fleirum  

Mánudaginn 19. desember opið kl 14-19

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 14-19, veðrið kl 15:30 er SV 6-13m/sek, 1 stigs frost en alskýjað, færið er mjög gott, góður snjór í öllum brekkum sem eru opnar í dag, sjá hér að ofan. Velkomin í fjallið Starfsmenn Veðurspá næstu daga, það er kuldi í kortunum, þar með mun færið haldast mjög gott. http://www.yr.no/sted/Island/Nor%C3%B0urland_Eystra/Skar%C3%B0sdalur~2627003/langtidsvarsel.html Opnunartími um hátíðarnar.  

Sunnudaginn 18. desember opið 11-16

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 11-16, veðrið kl 11:15 vestan gola, frost 2 stig og heiðskírt, færið er troðinn nýr snjór, silkifæri í öllum brekkum. Velkomin í fjallið starfsmenn Fróðleiksmoli dagsins: Grænland http://is.wikipedia.org/wiki/Gr%C3%A6nland

Laugardaginn 17. desember opið í dag frá kl 12-16

Kl 12:00 opið í dag frá kl 12-16. Sjá veðrið hér til hægri á síðu Veðurstöð. Kl 10:00 Opnun seinkað um klst til kl 12-16, það er mjög dimmt snjóél að ganga yfir núna. Skíðasvæðið er opið í dag frá kl 11-16, veðrið kl 09:00 SV 4-8m/sek, frost 3 stig, éljagangur og alskýjað, færið er mjög gott fyrir alla nýr snjór í brautum. Veðurspá dagsins: Suðvestan 5-10 m/s, en hægari norðlæg átt í kvöld. Lítilsháttar él. Suðaustan 8-15 eftir hádegi á morgun og dálítil snjókoma eða jafnvel slydda. Frost 2 til 8 stig, en hlýnandi á morgun. Spá gerð: 17.12.2011 06:38. Gildir til: 18.12.2011 18:00. Velkomin í fjallið starfsmenn Fróðleiksmoli dagsins: Úr Siglufjarðarbyggðum BÆKUR Sagnfræði SIGLFIRSKUR ANNÁLL Þ. Ragnar Jónasson tók saman. Vaka-Helgafell, 1998, 317 bls. ÞETTA er þriðja rit sama höfundar á jafnmörgum árum um Siglufjarðarbyggðir. Árið 1996 kom út bókin Siglfirskar þjóðsögur og sagnir og á síðasta ári Siglfirskir söguþættir. Nú er það annáll, allt frá landnámsöld og til þessa árs. Úr Siglufjarðarbyggðum BÆKUR Sagnfræði SIGLFIRSKUR ANNÁLL Þ. Ragnar Jónasson tók saman. Vaka-Helgafell, 1998, 317 bls. ÞETTA er þriðja rit sama höfundar á jafnmörgum árum um Siglufjarðarbyggðir. Árið 1996 kom út bókin Siglfirskar þjóðsögur og sagnir og á síðasta ári Siglfirskir söguþættir. Nú er það annáll, allt frá landnámsöld og til þessa árs. Ekki getur það dulist neinum að á bak við verk sem þetta hlýtur að liggja áratuga langt grúsk í heimildum og kerfisbundin söfnun. Frameftir öldum er raunar fátt að frétta af "þessum afskekktu útkjálkadölum", eins og það eitt sinn var orðað. Það eru helst frásagnir af slysförum, en þær voru æði margar. Þessir miklu sægarpar við ysta haf þurftu að greiða háan toll af lífsbaráttu sinni. Og þá voru snjóflóðin frek á mannslíf og mannvirki. Þá komu einnig til sögunnar margvísleg afskipti kirkjunnar - eða öllu heldur Hólabiskupa - sem hvarvetna seildust til yfirráða þar sem einhverja matarholu var að fá eða viðareka af sjó. Mér virðist höfundur tíunda þetta allt vandlega eftir því sem heimildir hrökkva til. Þegar nær dregur nútímanum verða heimildir að sjálfsögðu mun fleiri og að lokum má segja að mestur vandinn sé að velja og hafna. Siglufjörður verður á tímabili miðpunktur athafnalífs á Íslandi og þar gerast því margir hlutir. Þá má vera að sumum sem vel þekkja til finnist eitthvað verða útundan, þó að utanhéraðsmaður sjái það ekki. En ég fæ þó ekki betur séð en alls jafnvægis sé gætt. Annáll þessi skiptist í allmarga kafla. Sá fyrsti nær yfir tímabilið 874-1550 og er aðeins fimm blaðsíður. Síðan kemur kafli um tímabilið 1551-1700 og er hann örlítið lengri eða átta bls. Svo fara kaflarnir að lengjast jafnt og þétt og styttri tímabil tekin fyrir í hverjum kafla, 1701-1800, 14 bls., 1801-1850, 16 bls., 1851-1900, 31 bls., 1901- 1910, 9 bls., 1911-1920, 19 bls., 1921-1930, 20 bls., 1931-1940, 41 bls., 1941-1950, 20 bls., 1951- 1960, 14 bls., 1961-1970, 25 bls., 1971-1980, 19 bls., 1981-1990, 16 bls., og loks 1991-1998, 20 bls. Það er því rúmlega helmingur bókarinnar sem fjallar um tuttugustu öldina eina og er það að vonum. Í bókarlok er allmikil heimildaskrá eins og ætla má, Nafnaskrá, Staðanöfn og að lokum er skrá yfir helstu atburði og atriði, flokkuð eftir efnissviðum. Er að því gott hagræði. Höfundurinn hefur með þessum ritum sínum bætt drjúgum við sagnaritun heimabyggðar sinnar, sem menn mega vissulega vera honum þakklátir fyrir. Eins og fyrri bækur þessa ritsafns er þessi bók einkar fallega útgefin og öllum þeim til mikils sóma sem að henni standa. Sigurjón Björnsson Þ. Ragnar Jónasson  

Föstudaginn opið í dag frá kl 16-19

Skíðasvæði verður opið í dag frá kl 16-19, veðrið kl 12:30 ASA 2-5m/sek, frost 4 stig og léttskýjað, færið er troðinn nýr snjór mjög gott færi fyrir alla. Neðstasvæðið og T-lyftusvæðið verða opin í dag. Velkomin í fjallið starfsmenn Fjáröflun hjá Skíðafélagi Siglufjarðar http://skisigl.fjallabyggd.is/forsida/  

Fimmtudaginn 15. desember lokað í dag vegna veðurs

Kl 14:30 Það verður lokað í dag vegna veðurs, nú á svæðinu er ANA 5-10m/sek, mjög blint og skafrenningur og er vindur vaxandi. Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 16-20, veðrið kl 10:30 ANA 3-7m/sek, frost 5 stig, smá éljagangur og alskýjað. Færið er troðinn nýr snjór, mjög gott færi fyrir alla. Neðstasvæðið og T-lyftusvæði verða opin í dag. Nýtt!! Nýtt!! Fyrirtækjavetrarkort: 20 þúsund per stk 5.stk 10% afsláttur, 6-10 stk 15% afsláttur og 10 eða fleiri 20% afsláttur.  Þessi vetrarkort nýtast á milli starfsfólks. Veðurspá næstu daga: http://www.yr.no/sted/Island/Nor%C3%B0urland_Eystra/Skar%C3%B0sdalur~2627003/ Velkomin í fjallið starfsfólk