Fréttir

Mánudaginn 16. janúar opið kl 16-19

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 16-19, veðrið kl 11:45 WSW gola, hiti 4 stig og léttskýjað, færið er troðin þurr og rakur snjór í bland en mjög gott færi fyrir alla. Göngubraut er á Hólssvæði ca 2,5 km, brautin er létt og góð fyrir alla. Velkomin á skíði starfsfólk. Sjá hér að ofan hvaða svæði eru opin, grænt er opið en rautt er lokað svæði.

Sunnudaginn 15. janúar opið kl 11-16

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 11-16, veðrið kl 11:00 vestan gola, frostmark og heiðskírt, færði er troðinn nýr snjór í bland við rakan. Sjá hér að ofan hvað svæði eru opinn í dag. Á skíðasvæðinu í gær voru um 300 manns takk fyrir komuna. Göngubraut er á Hólssvæði ca 2,5 km tilbúinn kl 10:00 Velkomin á skíða í dag, starfsmenn

Laugardaginn 14. janúar opið kl 12-16

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 12-16, veðrið kl 10:00 vestan gola, hiti 2 stig, rigning og þoka. Það er töluvert erfitt að vinna brekkur í þessu veðri þegar hiti og rigning fara saman. Færið er mjög blaut. Neðstasvæði opnaði kl 12 og T-lyftusvæði verður opnað kl 13 Byrjendakennsla verður við skíðaskálan í dag. Velkomin í fjallið Starfsmenn  

Föstudaginn 13. janúar lokað vegna hvassviðris.

Lokað í dag vegna hvassviðris, veðrið kl 15:15 SSW 2-20m/sek, hiti 10 stig og heiðskírt. Byrjendakennsla verður við skíðaskálan í dag. Opnum á morgun kl 10-16, nýjar upplýsingar kl 08:00 Veðurspá í dag og á morgun.  Sunnan 10-18 m/s. Lægir í nótt, en hvessir aftur um tíma í fyrramálið. Rigning með köflum, en úrkomulítið síðdegis á morgun. Hiti 3 til 8 stig, en kólnar eftir hádegi á morgun. Spá gerð: 13.01.2012 12:24. Gildir til: 15.01.2012 00:00. Göngubraut á Hólssvæði ca 2,5 km mjög létt braut. Hún er að hluta til í ljósum. Nýjar upplýsingar kl 15:00

Fimmtudaginn 12. janúar opið kl 16-20

Í dag verður skíðasvæðið opið frá kl 16-20, veðrið kl 13:00 SW 2-4m/sek, frost 3 stig og heiðskírt mjög gott veður, færið er troðinn nýr snjór frábært færi fyrir alla. Ath. Þvergilsleið á T-lyftusvæði er lokuð og Innrileið á Búngusvæði er lokuð. Vinsamlega skíðið í troðnum brautum og virðið þessar lokanir. Göngubraut á Hólssvæði ca 2,5 km mjög létt braut. Hún er að hluta til í ljósum. Velkominn í fjallið starfsmenn  

Miðvikudaginn 11. janúar opið kl 16-20

Í dag verður skíðasvæðið opið frá kl 16-20, veðrið kl 14:00 SW 7-11m/sek, frost 4 stig en heiðskírt, það er töluverð vindkæling svo það er um að gera að búa sig vel. Sjá hér að að ofan hvaða svæði eru opin. Göngubraut á Hólssvæði ca 2,5 km mjög létt braut.Hún er að hlutatil í ljósum. Veðruspá dagsins: Norðvestan 3-8 m/s og skýjað með köflum, en stöku él úti við sjóinn. Hægviðri og léttskýjað á morgun. Frost 1 til 8 stig. Spá gerð: 11.01.2012 10:26. Gildir til: 13.01.2012 00:00. Velkomin í fjallið starfsmenn

Þriðjudaginn 10. janúar er lokað

Í dag þriðjudaginn 10. janúar hefur verið töluvert hvast á skíðasvæðinu, tvær sterkar hviður hafa komið fram á vindmælir önnur var 40,2m/sek kl 04:33 og hin var 46.9m/sek kl 15:05 svona getur SW áttin verði grimm við okkur. Opnum á morgun kl 16-20. Nýjar upplýsingar kl 12:00 Starfsmenn  

Mánudaginn 9. janúar opið kl 16-19

Kl 17:00 er komið logn, 2 stiga frost og heiðskírt. Færið er frábært. Opnum næst á miðvikudaginn 11. janúar kl 16-20, nýjar upplýsingar á miðvikudaginn kl 12:00 Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 16-19, veðrið kl 14:00 SSV 2-14m/sek, frost 1 stig og léttskýjað, samkvæmt veðurspá í dag á að lægja seinni partinn, færið er harðfenni. Opnum Neðstasvæðið og T-lyftusvæðið Starfsmenn  

Sunnudaginn 8. janúar lokað í dag

Kl 11:30 Skíðasvæðið verður lokað í dag vegna hita og mikilar rigningar. Opnum á morgun mánudaginn 9. janúar kl 14:00-19:00 Nýjar upplýsingar kl 12:30 á morgun Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 11-16, veðrið kl 10:00  austan 3-8m/sek, hiti 5 stig og lítisháttar rigning, færið er mjög gott. SNJÓR UM VÍÐA VERÖLD -  komum börnunum í snjóinn  -  sunnudagurinn 22. janúar 2012   Alþjóða skíðasambandið FIS stendur fyrir sérstökum degi „World Snow Day“ þar sem aðildarþjóðirnar eru hvattar til að brydda upp á nýjungum í því augnamiði að hvetja börn til skíðaiðkunar.  Dagurinn er hluti hvatningarátaks FIS „Bring children to the snow“ sem staðið hefur frá árinu 2007. Stjórn Skíðasambands Íslands  hefur ákveðið að svara kalli FIS með því að efna til sameiginlegs átaks allra aðildarfélaga sambandsins og skíðasvæðanna.  Þessir aðilar hafa allir sameiginlega hagsmuni af því að fjölga bönum og unglingum sem heimsækja fjöllin. Tilgangurinn er að hvetja foreldra til að koma með börnin í fjöllin og njóta þar hollrar útivstar í  hreinleika fjallanna.  Verkefnið er hugsað sem samstarfsverkefni SKÍ, skíðafélaganna, skíðasvæðanna og styrktaraðila sem taki höndum saman um að bjóða öllum börnum 12 ára og yngri ókeypis á skíði þennan dag. Velkomin í fjallið Starfsmenn

Laugardaginn 7. janúar opið kl 11-16

Í dag verður skíðasvæðið opið frá kl 11-16, veðrið kl 08:30 NA 3-6m/sek, frost 1 stig og en éljagangur, færið er troðinn nýr snjór, snjórinn er örlítið rakur á Neðstasvæðinu en er orðinn þurr á T-lyftusvæði og Búngusvæði. Veðurútlit er mjög gott fyrir daginn sjá hér: http://www.belgingur.is/ Velkomin í fjallið starfsfólk SNJÓR UM VÍÐA VERÖLD -  komum börnunum í snjóinn  -  sunnudagurinn 22. janúar 2012   Alþjóða skíðasambandið FIS stendur fyrir sérstökum degi „World Snow Day“ þar sem aðildarþjóðirnar eru hvattar til að brydda upp á nýjungum í því augnamiði að hvetja börn til skíðaiðkunar.  Dagurinn er hluti hvatningarátaks FIS „Bring children to the snow“ sem staðið hefur frá árinu 2007. Stjórn Skíðasambands Íslands  hefur ákveðið að svara kalli FIS með því að efna til sameiginlegs átaks allra aðildarfélaga sambandsins og skíðasvæðanna.  Þessir aðilar hafa allir sameiginlega hagsmuni af því að fjölga bönum og unglingum sem heimsækja fjöllin. Tilgangurinn er að hvetja foreldra til að koma með börnin í fjöllin og njóta þar hollrar útivstar í  hreinleika fjallanna.  Verkefnið er hugsað sem samstarfsverkefni SKÍ, skíðafélaganna, skíðasvæðanna og styrktaraðila sem taki höndum saman um að bjóða öllum börnum 12 ára og yngri ókeypis á skíði þennan dag.