Laugardaginn 7. janúar opið kl 11-16

Skarðsdalurinn
Skarðsdalurinn

Í dag verður skíðasvæðið opið frá kl 11-16, veðrið kl 08:30 NA 3-6m/sek, frost 1 stig og en éljagangur, færið er troðinn nýr snjór, snjórinn er örlítið rakur á Neðstasvæðinu en er orðinn þurr á T-lyftusvæði og Búngusvæði.

Veðurútlit er mjög gott fyrir daginn sjá hér: http://www.belgingur.is/

Velkomin í fjallið starfsfólk

SNJÓR UM VÍÐA VERÖLD -  komum börnunum í snjóinn  -  sunnudagurinn 22. janúar 2012

 

Alþjóða skíðasambandið FIS stendur fyrir sérstökum degi „World Snow Day“ þar sem aðildarþjóðirnar eru hvattar til að brydda upp á nýjungum í því augnamiði að hvetja börn til skíðaiðkunar.  Dagurinn er hluti hvatningarátaks FIS „Bring children to the snow“ sem staðið hefur frá árinu 2007.

Stjórn Skíðasambands Íslands  hefur ákveðið að svara kalli FIS með því að efna til sameiginlegs átaks allra aðildarfélaga sambandsins og skíðasvæðanna.  Þessir aðilar hafa allir sameiginlega hagsmuni af því að fjölga bönum og unglingum sem heimsækja fjöllin.

Tilgangurinn er að hvetja foreldra til að koma með börnin í fjöllin og njóta þar hollrar útivstar í  hreinleika fjallanna. 

Verkefnið er hugsað sem samstarfsverkefni SKÍ, skíðafélaganna, skíðasvæðanna og styrktaraðila sem taki höndum saman um að bjóða öllum börnum 12 ára og yngri ókeypis á skíði þennan dag.