Sunnudaginn 8. janúar lokað í dag

Við T-lyftu enda.
Við T-lyftu enda.

Kl 11:30 Skíðasvæðið verður lokað í dag vegna hita og mikilar rigningar.

Opnum á morgun mánudaginn 9. janúar kl 14:00-19:00

Nýjar upplýsingar kl 12:30 á morgun

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 11-16, veðrið kl 10:00  austan 3-8m/sek, hiti 5 stig og lítisháttar rigning, færið er mjög gott.

SNJÓR UM VÍÐA VERÖLD -  komum börnunum í snjóinn  -  sunnudagurinn 22. janúar 2012

 

Alþjóða skíðasambandið FIS stendur fyrir sérstökum degi „World Snow Day“ þar sem aðildarþjóðirnar eru hvattar til að brydda upp á nýjungum í því augnamiði að hvetja börn til skíðaiðkunar.  Dagurinn er hluti hvatningarátaks FIS „Bring children to the snow“ sem staðið hefur frá árinu 2007.

Stjórn Skíðasambands Íslands  hefur ákveðið að svara kalli FIS með því að efna til sameiginlegs átaks allra aðildarfélaga sambandsins og skíðasvæðanna.  Þessir aðilar hafa allir sameiginlega hagsmuni af því að fjölga bönum og unglingum sem heimsækja fjöllin.

Tilgangurinn er að hvetja foreldra til að koma með börnin í fjöllin og njóta þar hollrar útivstar í  hreinleika fjallanna. 

Verkefnið er hugsað sem samstarfsverkefni SKÍ, skíðafélaganna, skíðasvæðanna og styrktaraðila sem taki höndum saman um að bjóða öllum börnum 12 ára og yngri ókeypis á skíði þennan dag.

Velkomin í fjallið

Starfsmenn