Fréttir

Opnum 1. desember

Skíðasvæðið verður opnað 1. des, það er komin góður grunnur eins og myndin sínir

Vetrarkort er málið

Frá og með 15. nóvember verða vetrarkort í forsölu til 3. desember.

Mánudaginn 26.mars opið/open 11-18

Opið í dag frá kl 11-18, veðrið er ASA 2-6m/sek og hviður 8-12m/sek, hiti 3 stig og léttskýjað. Færið er troðinn þurr snjór mjög gott færi og góður snjór í troðnum brekkum. Það hefur lægt mikið þannig að allar lyftur eru í gangi núna. 10 skíðaleiðir klárar. Hólsgöngubraut tilbúin 3 km hringur. Velkomin á skíði í dag.

Sunnudaginn 25. mars opið/open 10-16

Opið í dag frá kl 10-16, veðrið er logn, frost 1 stig og léttskýjað. Færið er troðinn þurr snjór. Veður hér í dag verður mjög gott og færið er einnig mjög gott. 10 skíðaleiðir klárar og er Hólsgöngubraut tilbúin 3 km hringur. Fylgist með veðrinu hér á svæðinu heimasíðunni með því að smella á veðurstöð hér efst. Velkomin á skíði 

Laugardaginn 24. mars opið/open 10-16

Opið í dag frá kl 10-16, veðrið er logn, frost 3 stig og léttskýjað og mun sú gula sýna sig í dag. Færið er troðinn þurr snjór. 8 skíðaleiðir klárar. Hólsgöngubraut tilbúin 3 km hringur, flatur og góður hringur fyrir alla. Velkomin í Skarðsdalinn

Föstudaginn 23. mars opið/open 13-19

Opið í dag frá kl 13-19, veðrið kl 08:30 logn, lítilsháttar éljagangur og frost 1 stig en það mun létta til eftir hádegið. Veðrið næstu daga eða til 1. apríl er mjög gott hér á Sigló Færið er troðinn þurr snjór í bland við blautan, en hefur snjóað aðeins á svæðinu. 7 skíðaleiðir klárar og verður Hólsgöngubraut tilbúin kl 14:00 Ath. fylgist með veðrinu hér á svæðinu með því að smella á veðurstöð hér efst á síðunni. Velkomin á skíði 

Fimmtudaginn 22. mars opið/open 13-19

Opið í dag frá kl 13-19, veðrið kl 12:30 logn, hiti 4 stig og heiðskírt. Færið er troðinn blautur snjór en er þurrar eftir því sem ofar kemur, það hefur snjóað aðeins í efrihlutanum. 5 skíðaleiði og 4 lyftur opnar í dag. Það er gönguspor eftir snjósleða í Hólsgöngubraut. Velkomin á skíði

Miðvikudaginn 21. mars opið/open 13-19

Opið í dag frá kl 13-19, veðrið logn, hiti 1 stig og er heiðskírt. Færið er troðinn vorsnjór. Það er mjög  gott færi fyrir bretti og breið skíði. 5 skíðaleiðir klárar og gönguspor eftir snjósleða á Hólssvæði Velkomin í Skarðsdalinn

Þriðjudaginn 20. mars lokað/closed

Lokað í dag/closed today Opnum á morgun kl 13:00/open tomorrow at 13:00

Mánudaginn 19. mars opið/open 13-19

Opið í dag frá kl 13-19, veðrið er SSW 4-8m/sek, hiti 6 stig og léttskýjað. Færið er vorfæri, það er mjög erfitt að troða í þessu færi en það sem er troðið er Neðstsvæðið og T-lyftusvæðið efri-svæðin Hálslyftusvæði og Búngulyftusvæði halda betur og eru ótroðin. Utanbrautarfæri er hér mjög gott í dalnum Hólsgöngubraut er tilbúin Velkomin á skíði í dag.