Fréttir

Mánudaginn 26. febrúar opið/open 13-19

Opið í dag frá kl 13-19,  kl 16:30 er veðrið mjög gott og verður svo í dag WSW gola, hiti 6 stig en alskýjað. Snjóhiti er -1,5c Færið er unnið harðfenni og mun færið mýkjast þegar líður á daginn. Hólsgöngubraut tilbúin 3 km hringur. Velkomin á skíði í dag

Sunnudaginn 25. febrúar opið/open 10-16

Opið í dag frá kl 10-16, veðirð er mjög gott sunnan gola, hiti 1-4 stig og léttskýjað. Færið er troðinn þurr snjór. 8 brekkur klárar, æfintýraleið og  hólar við Neðstasvæðið. Í Búngubakka fer fram stórsvigæfing til kl 12:00, það er önnur skíðaleið niður Búngusvæði Miðbakki og að Hálslyftu. Hólsgöngubraut verður tilbúin kl 12:00 Velkomin á skíði í dag

Laugardaginn 24. febrúar opið/open 10-16

Takk öll fyrir komuna í dag, það verður mjög gott veður hér á morgun og Skarðsdalurinn mun taka vel á móti ykkur. Nú klukkan 14:30 eru 900 manns komnir í fjallið. Opið í dag frá kl 10-16, veðrið er sunnan 4-10m/sek, hiti 6 stig og bjart. Hitastig í snjónum er +0,6. Færið er troðinn þurr snjór og er mjög gott færi í öllum brekkum. Í dag fer fram Stubbamót við Neðstu-lyftu fyrir 5-8 ára sem hefst kl 11:30 og tökum tillit til þess. Það er hægt að skíða niður með lyftuni og æfintýraleið er opin. Í Búngubakka og niður í Hálslyftu þar fer fram stórsvigsæfing. Miðbakki er troðinn á Búngusvæði og er skíðaleið niður að Hálslyftu Hólsgöngubraut er tilbúin kl 13:00 Velkomin á skíði

Föstudaginn 23. febrúar opið/open 13-19

Það verður flott veður um helgina. Opið í dag frá kl 13-19, veðrið er SA 3-10m/sek, hiti 2 stig og alskýjað. Færið er troðinn þurr snjór Hólsgöngubraut tilbúin kl 14:00 3 km hringur Á morgun kl 11:30 fer fram Stubbamót 5-9 ára og fer mótið fram við Neðstu-lyftu. Velkomin í Skarðsdalinn

Fimmtudaginn 22. febrúar opið/open 13-19

Opið í dag frá kl 13-19, veðrið kl 15:30 SSW 5-10m/sek, frost 4 stig og heiðskírt. Færið er troðinn þurr snjór. Hólsgöngubraut 2,5 km hringur tilbúin kl 13:00 Erum að vinna við að koma Hálslyftu í gang og opnum allar lyftur á morgun. Velkomin á skíði

Miðvikudaginn 21.febrúar lokað/closed

Það verður lokað í dag vegna hvassviðris. Nýjar upplýsingar á morgun kl 09:00

Þriðjudaginn 20. febrúar opið/open 14-19

Það verður opið í dag frá kl 14-19, veðrið kl 14:00 SSW 7-15m/sek, frost 2 stig og léttskýjað og það mun birta til og lægja eftir kl 14:00. Færið er unnið harðfenni. Hólsgöngubraut verður troðin í dag og tilbúin kl 14:00 3 km hringur. Velkomin á skíði

Mánudaginn 19. febrúar opið/open 13-19

Opið í dag frá kl 13-19, veðrið kl 09:00 SSA gola, hiti 3-6 stig og heiðskírt og verður svona veður hér í dag. Færið er mjög gott. 5 brekkur, æfintýraleið, hólabrautir og fl og fl Hólsgöngubraut tilbúin 3 km hringur. Velkomin á skíði 

Sunnudaginn 18. febrúar opið /open 10-16

Opið í dag frá kl 10-16, veðrið kl 07:30 sunnan gola, frost 4-7 stig og heiðskírt. Svona veður verður hér í Skarðsdalnum í dag. Færið er troðinn þurr snjór, veður og færi er eins og það gerist bezt. 6 brekkur klárar, æfintýraleið, hólabrautir, leikjabraut og fl og fl Hólsgöngubraut tilbúin 3 km hringur. Velkomin á skíði

Laugardaginn 17. febrúar opið/open 10-16

Flottir 3 dagar í Skarðsdalnum en 700 manns hafa komið í fjallið og á morgun verður sama veðurblíðan sunnan gola, frost 4-5 stig og heiðskírt. Sjáumst hress í Skarðsdalnum Opið í dag frá kl 10-16, veðrið er mjög gott sunnan gola, frost 2-3 stig og léttskýjað. Færið er troðinn þurr snjór, mjög gott færi í troðnum brautum. 6 brekkur klárar, æfintýraleið, hólabrautir og fl og fl. Hólsgöngubraut tilbúin 3 km hringur léttur og góður fyrir alla. Velkomin á skíði