Fréttir

Sunnudaginn 5. mars opið 10-16

Opið í dag frá kl 10-16, veðrið er austan gola, frost 2 stig og léttskýjað, færið er troðinn þurr snjór. það verður flottur dagur í dag í Skarðsdalnum Æfintýraleið við Neðstasvæðið og Bobbbraut við T-lyftusvæðið. Velkomin í dalinn góða Starfsmenn

Laugardaginn 4. febrúar opið 10-16

Opið í dag frá kl 10-16, veðrið kl 08:00 er frábært logn, frost 5 stig og heiðskírt og mun sú gula koma upp kl 09:30. Færið er troðinn þurr snjór og eru 8 skíðaleiðir klárar. Nú er topp dagur framundan. Æfintýraleið og leikjabraut við Neðstasvæðið og Bobbbraut og leikjabraut við T-lyftusvæðið. Mjög gott utanbrautarfæri er á Búngusvæðið og Hálslyftusvæði. Frítt er fyrir börn 12 ára og yngri í lyftur og kakó á eftir, Skíðasvæðið og Skíðafélag Siglufjarðar Velkomin í Skarðsdalinn Starfsmenn

Föstudaginn 3. febrúar 13:00-18:30 opið

Opið í dag frá kl 13:00-18:30, veðrið er frábært og  færið er frábært, það þarf ekki að segja meira logn, frost 5 stig og sól, færið er troðinn þurr snjór. Utanbrautarfæri í efrihlutanum er meiriháttar ca 1200 metra langt. Æfintýrabraut við neðstulyftu og Bobbbraut á T-lyftusvæði. !!!!Skarðsdalurinn er sennilega flottasti dalur í heimi í dag, þetta segir fólkið!!!! Velkomin í fjallið Fjallamenn

Fimmtudaginn 2. mars opið 13-21

Opið í dag frá kl 13-21, veðrið er meiriháttar, logn, frost 4 stig og heiðskírt. Færið er troðinn þurr snjór. það eru 8 skíðaleiðir klárar og er mjög gott utanbrautarfæri í efrihlutanum. Nú er flottur dagur framunda og verður svo næstu daga. Velkomin í Skarðsdalinn Starfsmenn

Miðvikudaginn 1. mars opið 13-19

Opnum á morgun kl 13:00 Opið í dag frá kl 13:00 -19:00, veðrið er bara flott, logn, frost 4 stig og heiðskírt, færið er frábært í troðnum brautum, troðinn þurr snjór. Flott utanbrautarfæri í efrihlutanum. Sú gula er komin í dalinn. Skíðaleiðir eru 8 í dag og við allra hæfi, Æfintýraleið og Bobbbraut. Velkomin í Skarðsdalinn

Þriðjudaginn 28. febrúar opið 14-19

Nú er það flott og verður svo næstu daga. Opið í dag frá kl 14-19, veðrið kl 14:00 er SA 0-4m/sek, frost 3 stig, og sólin komin í dalinn. Færið er troðinn þurr snjór. Það sem er troðið er.  Neðstasvæði brekka meðfram lyftu og æfintýraleið.  T-lyftusvæði brekka meðfram lyftu.  Hálslyftusvæði Stálmastursbakki meðfram lyftu.  Búngusvæði Búngubakki og Miðbakki niður að Hálslyftu.   Nú er bara veðurblíða framundan, hér er veðurspá næstu daga. http://www.vedur.is/vedur/spar/stadaspar/nordurland_vestra/#group=114&station=3752 Velkomin í Skarðsdalinn

Mánudaginn 27. febrúar opið 14-19

Opið í dag frá kl 14-19, veðrið kl 13:30 ANA 8-16m/sek, lítilsháttar éljagangur og er 1 stigs frost. Það birtir til þegar líður á daginn og það verður NA 5-10m/sek. Færið er troðinn þurr snjór. Það verður brakandi blíða næstu 9 daga logn, frost og heiðskírt og brekkurnar eru meiriháttar.  Velkomin í fjallið Starfsmenn

Sunnudaginn 26. febrúar lokað

Það verður lokað í dag vegna vinds, vindur kl 08:30 er ASA 8-15m/sek og hviður eru 20-25m/sek og verður þessi vindur til  kl 16:00 í dag. Það er nú alltaf eitthvað jákvætt í stöðunni það kemur smá hvítt gull á næsta sólahring og frá og með þriðjudeginum 28 febrúar og til 8 mars er bara gott veður.    Nýjar upplýsingar á morgun kl 10:00

Laugardaginn 25. febrúar lokað

Það verður lokað í dag vegna vinds, vindur á svæðinu er kl 10:00 5-20m/sek við skíðaskálan en 20 m/sek og yfir við Búngulyftu. Vindaspá er því miður ekki góð fyrir daginn SW átt 10-20m/sek  Það er bara bjart framundan í Skarðsdalnum, það mun snjóa næstu 2 daga og svo er blíða næstu 6 daga þar á eftir. http://www.yr.no/place/Iceland/Nor%C3%B0urland_Eystra/Skar%C3%B0sdalur/long.html Nýjar upplýsingar á morgun kl 08:00

Föstudaginn 24 opið kl 12:00-18:30

Kl 15:00 Lokað vegna hvassviðris Opið í dag frákl 12-18:30, veðrið kl 14:10 ASA 10-20m/sek, frost 1 stig en alskýjað. Færið er troðinn þurr snjór. Takið daginn snemma það fer að hvassa seinnipartinn Velkomin í Skarðsdalinn Starfsmenn