Fréttir

Miðvikudaginn 15. mars opið 14-19

Opið í dag frá kl 14-19.  Veðrið kl 08:00 SSA 2-6m/sek, frost 2 stig, léttskýjað og kemur sú gula upp kl 09:30. Það á að lægja þegar líður á daginn. Færið er troðinn þurr snjór. Á síðasta sólahring hefur snjóað 10-20 sm. Velkomin í Skarðsdalinn Starfsmenn

Þriðjudaginn 14.mars lokað

Það verður lokað í dag, því nú erum við að taka á móti hvíta---gullinu!!! Þða verður flott veður á morgun og opnum við kl 13-19 Sjáumst hress

Mánudaginn 13. mars opið 13-19

Opið í dag frá kl 13-19, veðrið kl 14:00 VSV 2-6m/sek, hiti 0 stig og léttskýjað og sólin að koma í dalinn. Færið er þurr snjór í öllum brekkum. 8 skíðaleiðir klárar. Velkomin í Fjallið Fjallamenn

Sunnudaginn 12. mars opið 10-16

En einn flottur dagur að baki en í dag komu 250 manns í fjallið, takk fyrir komuna í Skarðsdalinn, sjáumst hress, opnum á morgun kl 13-19 Opið í dag frá kl 10-16, veðrið er W gola, hiti 1 stig við skíðaskálan en frost 2 stig við sleppingu á Búngulyftu og heiðskírt. Færið er troðinn þurr snjór. 8 skíðaleiðir eru klárar og er Æfintýraleið við Neðstulyftu og Bobbbraut við T-lyftusvæðið. Fallegur dagur framundan í dag. Velkomin í Skarðsdalinn Starfsmenn  

Laugardaginn 11. mars opið 10-16

Flottur dagur að baki en um 270 manns komu í fjallið í dag, takk fyrir komuna, sjáumst hress á morgun. Nýjar upplýsingar kl 08:00. Opið í dag frá kl 10-16, veðrið kl 08:00 SA gola, hiti 3 stig við skíðaskála 200 metra hæð en um frostmark á Búngulyftusvæði 480 metra hæð og léttskýjað og er sú gula að koma upp. Færið er troðinn þurr snjór og eru 8 skíðaleiðir klárar. Velkomin í Skarðsdalinn Starfsmenn

Föstudaginn 10. mars opið 13-18:30

!!!Ja nú er það flott!!! Opið í dag frá kl 13-18:30, veðrið er mjög gott SA gola, frost 3 stig, heiðskírt og blessuð sólin verður hjá okkur í dag. Færið er troðinn þurr snjór það hefur snjóað ca 10 sm á síðasta sólahring. 8 skíðaleiðir klárar. Velkomin í Skarðsdalinn Starfsmenn

Fimmtudaginn 9. mars lokað

Kl 20:00 er 4 stiga frost, snjókoma og hefur snjóað ca 10-20 sm í dag, veðurútlit næstu dag er gott. Sjáumst hress í Skarðsdalnum Í dag verður lokað því nú ætlum við að taka á móti hvíta gullinu.   Kl 08:00 eru komnir 3 sm og mun koma meira fram á kvöld. Opnum á morgun kl 13:00 í nýjum snjó með dásamlegu brekkum eins og hefur verið undanfarna 10 daga. Velkomin í Skarðsdalinn Starfsmenn

Miðvikudaginn 8. mars opið 14-19

Opið í dag frá kl 14-19  Veðrið kl 16:00 er bara gott logn, frost 1 stig og er þoka að dansa í dalnum. Færið er harðpakkaður snjór frábært færi í mertum brautum og utanbrautarfæri er mjög gott í efrihlutanum ca 1200 metra langt. 8 skíðaleiðir klárar. Velkomin í fjallið Fjallamenn

Þriðjudaginn 7. mars opið 14-19

Opið í dag frá kl 14-19, veðrið er mjög gott logn, frost 2 stig og heiðskírt. Færið er harðpakkaður snjór. 8 skíðaleiðir klárar. Velkomin í fjallið Fjallamenn

Mánudaginn 6. mars opið 11:00-19:00

Opið í dag frá kl 11-19, veðrið er SA gola, frostmark og heiðskírt. Færið er troðinn þurr snjór. Það verður flott veður og færi í dag. Velkomin í Skarðsdalinn Starfsmenn