Fréttir

Sunnudaginn 12. janúar opið 10-16

Í dag verður opið frá kl 10-16. Veðrið kl 09:00 NA 3-7m/sek, frost 3 stig og heiðskírt. Færið er troðinn þurr snjór. Takið daginn snemma vaxandi vindur þegar líður á daginn. Velkomin í fjallið

Laugardaginn 11. janúar opid frá kl 10:30- 16:00

Í dag verður opið frá kl 10:30 - 16:00. Veðrið kl 08:30 austan 2-5m/sek, frost 2 stig og heiðskírt. Færið er troðinn þurr snjór. Ath. Búngulyfta er biluð og verður ekki komin í lag fyrr en í næstu viku. Velkomin í fjallið Starfsmenn

Föstudaginn 10. janúar opið kl 15-19

Á morgun stefnum við á að opna kl 10:00 og verða keyrðar 3 lyftur. Búngu-lyfta fer ekki í gang fyrr en seinni-partinn í næstu viku, það er töluvert tjón á henni eftir miklar ísingar síðasliðnar 3 vikur. Það er alveg ljóst að þetta er mesta ísingaveður síðan 1970-72 á okkar svæði. Sjáumst hress á morgun Starfsmenn. KL 15:15 það verður lokað í dag vegna hvassviðris ANA 8-16m/sek og hviður 18-26m/sek. Opnum á morgun kl 10:00 Nýjar upplýsingar kl 08:00 Í dag verður opið frá kl 15-19. Veðrið kl 14:30 SSA 2-12m/sek, frost 1 stig og léttskýjað. Færið er troðinn þurr snjór. Flott færi fyrir alla. Velkomin í fjallið Starfsmenn

Fimmtudaginn 9. janúar loksins opið kl 16-19

Í dag verður opið frá kl 16-19. !!Loksins!! Veðrið kl 10:40 austan gola, frost 2 stig og heiðskírt. Færið er troðinn þurr snjór og mikið af honum. Velkomin í fjallið Starfsmenn

Miðvikudaginn 8. janúar lokað í dag

Kl 15:15 Það verður lokað í dag veðrið er NA 5-10m/sek um frostmark og mikil ísing á öllu svæðinu. Skyggni er mjög lítið og brekkur eru mjög mjúkar. Sjáumst hress á morgun Starfsmenn kl  13:00 Opnun í skoðun kl 16:00. Nýjar upplýsingar um kl 15:00. Starfsmenn

Þriðjudaginn 7. janúar lokað í dag.

Kl 15:00 Það verður lokað í dag. Veðrið NA 8-12m/sek, hiti 1 stig, aðstæður eru ekki góðar rigning og slydda, mikil blinda og mjög mjúkt færi. Veðurútlit á morgun er mun betra. Í dag erum við með opnun í skoðun kl 16:00. Veðrið kl 13:00 A 5-8m/sek,  rigning og slydda og er töluverð blinda. Nýjar upplýsingar kl 15:00 Starfsmenn

Mánudaginn 6. janúar þrettándinn

Kl 15:15 það verður lokað í dag. Á svæðinu er ekkert skyggni og frost rigning þannig að aðstæður eru ekki góðar, mikil ísing. Í dag stefnum við á  að opna kl 16:00. Veðrið kl 10:00 NNA 6-13m/sek, frost 2 stig og er slydda. Ath veðurstöð er illa ísuð og virkar ekki. Nýjar upplýsingar kl 15:00 Starfsmenn

Sunnudaginn 5. janúar Lokað verður vegna veðurs

kl 12:00 það verður lokað í dag vegna veðurs. Í dag erum við með opnun í skoðun kl 12:00. Nýjar upplýsingar kl 11:00 Veðrið kl 08:30 NA 5-14m/sek, frost 1 stig. Ath vindmælir er bilaður. Starfsmenn

Laugardaginn 4. janúar verður lokað vegna veðurs

Í dag verður lokað vegna veðurs. Kl 08:00 er NA 10-18m/sek, slydda og frost 1 stig. Svona veður verður í dag samkvæmt veðurspá. Ath að vindmælir er bilaður vegna ísingar.  Notum handmælir til að mæla vind. Bendi þeim sem langar á skíði í dag að það eru góðar aðstæður á Akureyri, kynnið ykkur stöðuna á Akureyri inn á hlidarfjall.is Nýtið ykkur Norðurlandskortið   Nýjar upplýsingar á morgun kl 08:00

Föstudaginn 3. janúar lokað það er stormur á svæðinu

Kl 15:00 Lokað í dag vegna veðurs.  Þegar þessar línur eru skrifaðar, er NA stormur og mikið ísingaveður og er mesta hviða í dag 3.janúar 42m/sek og eru höld komin niður á jörð í T-lyftu, Hálslyftu og Búngulyftu.  Nýjar upplýsingar á morgun kl 10:00 Starfsmenn Í dag erum við með opnun í skoðun. Veðrið kl 10:00 ANA stormur, frostmark. Skoðum í dag kl 15:00 hvort hægt verður að opna kl 16:00. Veðurspá dagsins: Strandir og Norðurland vestra Norðaustan 15-25 m/s og slydda, en sums staðar snjókoma inn til landsins. Hægari og úrkomuminna um tíma síðdegis. Norðaustan 13-20 í kvöld og á morgun og rigning eða slydda. Hiti 0 til 3 stig. Starfsmenn