Fréttir

Annar í páskum 9. apríl lokað vegna veðurs

Skíðasvæðið verður lokað í dag vegna veðurs, veðrið kl 12:45 ESE 20-28m/sek hviður 30-35m/sek, mesta hviða í dag 44.7m/sek kl 10:14, frost 3 stig og er töluverð snjókoma og skafrenningur á svæðinu, það hefur snjóað ca 20-30 cm á svæðinu. Svæðið opnar aftur á miðvikudaginn 11. apríl Starfsmenn skíðasvæðisins þakkar öllum þeim fjölda manns sem heimsótu okkur í Páskavikunni. Eigið þið góða heimferð í dag. Starfsmenn Sjáið endilega þetta myndband af skíðasvæðinu Skarðsdal, það gleður augað: http://hedinsfjordur.is/a-skidum-i-skidaparadis-siglfirdinga-myndband/  

Sunnudaginn 8. apríl lokað í dag vegan veðurs

Gleðilega páska!!! Gleðilaga páska!!! Kl 12:00 Veðrið hefur ekkert lagast og því verður lokað í dag vegna veðurs. Veðrið kl 12:00 SSV 5-20m/sek, frostmark, slyddukrapahríð. Opnum á morgun kl 10-16, nýjar upplýsingar kl 08:00 annan í páskum Starfsmenn Sjógallinn dugar að ég helda ekki núna. Tökum stöðunna kl 12:00 Kl 11:30 Opnun í skoðun kl 12:00, veðrið kl 11:30 SV 6-15m/sek, hviður í 18m/sek, rigning/ slydda og um frostmark við Skíðaskálan en 2. stiga frost við enda á T-lyftu og 20m/sek Nýjar upplýsingar kl 12:00. Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 10-16, veðrið er SSV 2-12m/sek, talsverð rigning/slydda og hiti 1 stig. Færið er troðinn blautur snjór. Það er slydda í efrihluta á T-lyftu. Góður sjógalli væri æskilegur í dag. Páskaeggjamót kl 13:00 fyrir 10 ára og yngri á Neðstasvæðinu. Það er nú þetta með rigningun að sumum finnst hún góð öðrum ekki. Engin göngubraut verður lögð í dag vegna veðurs. Velkomin í fjallið starfsmenn Sjáið endilega þetta myndband af skíðasvæðinu Skarðsdal: http://hedinsfjordur.is/a-skidum-i-skidaparadis-siglfirdinga-myndband/ Fróðleiksmoli dagsins um rigningu: http://is.wikipedia.org/wiki/Rigning

Laugardagurinn 7. apríl opið kl 10-16

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 10-16, veðrið kl 10:45 vestan gola, lítilsháttar rigning, hiti 1 stig og þokan er að koma og fara, búið að troða allar brekkur. Allt troðið í gærkveldi og nótt þannig að brekkurnar hafa stirðnað í ca 8 tíma. Við hér á svæðinu mælum með því að þið skíðagestir góðir mætið snemma í fjallið því færið versnar þegar líður á daginn og hún rigningin gæti komið þegar líður á daginn. Öll svæðin verða opin og göngubraut tilbúinn kl 12:00 á Súlunum. Sjáið endilega þetta myndband af skíðasvæðinu Skarðsdal: http://hedinsfjordur.is/a-skidum-i-skidaparadis-siglfirdinga-myndband/ Velkomin í fjallið Fróðleiksmoli dagsins hjólað niður Skarðsdalinn: http://www.youtube.com/watch?v=aceSaa28Tq8

Föstudaginn langa 6. apríl opið kl 10-16

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 10-16, veðrið kl 08:00 V-gola, hiti 1 stig og smá þokusúld en það er 1 . stig frost í efri-hlutanum. Færið er troðinn blautur snjór, allar brekkur troðnar í gærkveldi og nótt, það er betra færi en var í gær en skyggnið er þannig að þokan er að koma og fara og er skyggnið nokkuð gott inn á milli. Búngusvæðið er í skoðun þar er blindþoka. Göngubraut verður tilbúinn kl 13:00 upp á Súlum. Velkomin í fjallið. Starfsmenn Sjáið endilega þetta myndband af skíðasvæðinu Skarðsdal: http://hedinsfjordur.is/a-skidum-i-skidaparadis-siglfirdinga-myndband/

Fimmudaginn 5 apríl skírdag opið kl 10-16

Góðan daginn gott skíðafólk skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 10-16, veðrið kl 08:00 ASA 2-5m/sek, hiti 2 stig, rigning og þoka með köflum. Skyggnið á svæðinu nú er þannig að það sést frá skíðaskála og að enda á T-lyftu en það er ekkert skyggni ofan við T-lyftusvæði. Færið er troðinn blautur snjór en færið á T-lyftusvæði er harðara en það er mýkra á Neðstasvæðinu. Byrjum á að opna Neðstasvæðið og T-lyftusvæðið. Búngusvæði er í skoðun þar er ekkert skyggni. Göngubraut verður lögð  um leið og birtir til. Velkomin í fjallið Sjáið endilega þetta myndband af skíðasvæðinu Skarðsdal: http://hedinsfjordur.is/a-skidum-i-skidaparadis-siglfirdinga-myndband/ Starfsmenn

Miðvikudaginn 4. apríl lokað vegna hvassviðris

Kl 14.00 Skíðasvæðið verður lokað í dag vegna hvassviðris, veðrið kl 14.00 SV 10-18m/sek og hviður 25-30m/sek. Opnum á morgun skírdag kl 10-16. Nýjar upplýsingar á morgun kl 08:00 Starfsmenn Veður horfur næstu daga eru mun betra. Skíðasvæðið kl 10:00 erum við með opnun í skoðun kl 14:00, veðrið kl 10:00 SV 6-15m/sek og hviður í 25m/sek. Nýjar upplýsingar um kl 14:00 Starfsmenn Sjáið endilega þetta myndband af skíðasvæðinu Skarðsdal: http://hedinsfjordur.is/a-skidum-i-skidaparadis-siglfirdinga-myndband/ Fróðleiksmoli dagsins: http://sagnagrunnur.razorch.com/index.php?target=myth&id=1448

Þriðjudaginn 3. apríl lokað í dag vegna hvassviðris

Kl 14:00 Skíðasvæðið verður lokað í dag vegna hvassviðris. Opnum á morgun kl 13-19. Nýjar upplýsingar kl 10:00 Starfsmenn Góðan daginn gott skíðafólk, opnun í dag er í skoðun, veðrið kl 09:00 á neðrihluta svæðisins er SV 6-12 m/sek og hviður upp í 20 m/sek, 2 stiga frost og heiðskírt. Á Búngusvæði kl 09:00 er vindur SV 12-15m/sek og hviður 20-25 m/sek og frost 4 stig. Nýjar upplýsingar kl 14:00 Starfsmenn Sjáið endilega þetta myndband af skíðasvæðinu Skarðsdal: http://hedinsfjordur.is/a-skidum-i-skidaparadis-siglfirdinga-myndband/ Fróðleiksmoli dagsins: Siglufjarðarskarð Hnit: 66°7′18.9″N18°59′56.4″WSiglufjarðarskarð er íslenskur fjallvegur sem liggur á milli Siglufjarðar og Fljóta í Skagafirði. Það var áður aðalleiðin frá Skagafirði til Siglufjarðar, allt þar til Strákagöng voru opnuð 1967. Allt í kringum Siglufjörð eru há og brött fjöll og leiðin um Siglufjarðarskarð, sem er í 630 metra hæð yfir sjávarmáli, var greiðfærasta leiðin úr firðinum og þó ærið erfið, bæði vegna þess hve brött hún var Siglufjarðarmegin og ekki síður vegna snjóa og illviðra á vetrum. Eftir að þéttbýli myndaðist á Siglufirði fóru nær allir flutningar fram sjóleiðina. Upphaflega var fjallseggin í skarðinu svo mjó að þar mátti sitja klofvega með annan fótinn í Skagafjarðarsýslu en hinn í Eyjafjarðarsýslu. Í þessa egg hafði þó til forna verið höggvið skarð, nægilega breitt til að unnt væri að koma klyfjahesti þar í gegn. Skarðið var svo sprengt niður um fjórtán metra árið 1940 og í framhaldi af því var lagður akfær vegur um skarðið árið 1946. Hann var yfirleitt aðeins fær fjóra til fimm mánuði á ári vegna snjóþyngsla en þó var mikil samgöngubót að honum. Sagnir voru um óvætti í skarðinu fyrr á tíð og árið 1735 flutti Þorleifur Skaftason í Múla, sem talinn var kunna ýmislegt fyrir sér, þar messu að boði Steins Jónssonar biskups og er sagt að honum hafi tekist að beina vondum öflum úr skarðinu og í Afglapaskarð, þar skammt fyrir sunnan. Ferðir um Siglufjarðarskarð lágu niðri að mestu eða öllu í mörg ár eftir að Strákagöng voru opnuð en nú er reynt að halda veginum opnum yfir sumartímann, að minnsta kosti fyrir jeppa.    

Mánudaginn 2. apríl opið kl 13-19

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 13-19, veður og færi er frábært, veðrið kl 12:00 austan gola, frost 3 stig, heiðskírt og glaða sólskin. Færið er troðinn þurr snjór í öllum brekkum og eru allar brekkur breiðar og góðar. Við hér á svæðinu mælum með þessum degi að mæta í fjallið. Velkomin í Skarðsdalinn Starfsmenn Sjáið endilega þetta myndband af skíðasvæðinu Skarðsdal: http://hedinsfjordur.is/a-skidum-i-skidaparadis-siglfirdinga-myndband/  

Sunnudaginn 1. apríl opið kl 10-16

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 10-16, veðrið kl 08:00 ANA 3-7m/sek, frost 4 stig og alskýjað. Færið er troðinn nýr snjór á T-lyftusvæði og Neðstasvæðið er mjög gott. Búngusvæðið er í skoðun, erum að brjóta ísingu af, og skyggnið er ekkert eins og er á Bungusvæði Svæðið lítur mjög vel út nægur snjór og breiðar og góðar brekkur. Sjáið endilega þetta myndband af skíðasvæðinu Skarðsdal: http://hedinsfjordur.is/a-skidum-i-skidaparadis-siglfirdinga-myndband/ Velkomin í fjallið Starfsmenn