Fréttir

Þriðjudaginn 5. apríl lokað

Nú tökum við starfsfólkið okkur einn frídag fyrir lokaátökin, opnum á morgun kl 15 nýjar upplýsingar kl 12 á morgun. Göngubraut er tilbúinn með spori í Skarðsdalsbotni ca 2 km Sjáumst hress Starfsfólk  

Mánudaginn 4. apríl opið kl 14-20

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 14-20, í dag er frábært veður og færi austan gola, hiti 2 stig og heiðskírt, færið er troðinn þurr snjór og allar brekkur tilbúnar. Hólabraut, bobbbraut og pallar í Þvergilinu, göngubraut tilbúinn kl 16:00 í Skarðsdalsbotni ca 2 km. Veðurspá dagsins: Hægviðri og léttskýjað, en austan 5-10 m/s síðdegis og þykknar upp. Hægari vindur í nótt og á morgun og rigning af og til. Hiti 0 til 6 stig yfir daginn. Velkomin í fjallið Starfsfólk  

Sunnudaginn 3. apríl opið kl 10-16

Siglfirsku alparnir eru opnir í dag frá kl 10-16, veðrið kl 08:00 WSW 2-4m/sek, frost 1 stig og heiðskírt, færið er troðinn þurr snjór s s frábært veður og færi. Veðurspá dagsins: Hægviðri, en austlæg átt 3-8 m/s á morgun. Bjart að mestu og hiti 0 til 5 stig yfir daginn.  

Laugardaginn 2. apríl opið kl 10-16

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 10-16, veðrið kl VNV 3-6m/sek, slydda og alskýjað, færið er troðinn blautur snjór á neðstasvæðinu en er töluvert þurrari á T-lyftusvæði. Á svæðinu kl 14:30 er um 400 manns, það stefnir í mjög góðan dag á morgun, það er góð veðurspá fyrir morgundaginn.  Veðurspá dagsins: Fremur hæg breytileg átt og slydda, en þurrt að kalla síðdegis. Hægviðri í nótt og á morgun og skýjað með köflum. Hiti 0 til 5 stig að deginum. Velkomin í fjallið Starfsfólk

Föstudaginn 1. apríl opið kl 14-19

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 14-19, veðrið kl 12:30 SSA 3-6m/sek, hiti 3 stig og léttskýjað, færið er unnið harðfenni og blautur snjór í bland.  Loka dagur í skíðakennslu fyrir fullorðna er í dag frá kl 17:30-19 Veðurspá næstu daga er mjög góð svo nú er um að gera drífa sig í fjallið. Starfsfólkið tekur vel á móti ykkur

Fimmtudaginn 31. mars opið kl 15-20

Skíðasvæðið veður opið í daga frá kl 15-20, veðrið kl 09:30 er frábært W-gola, hiti 5 stig og léttskýjað, færið er troðinn blautur snjór en er þurrari eftir því sem ofar kemur, allar lyftur keyrðar. Núna í fjallinu kl 10 eru Grunnskólakrakka og Leikskólabörn frá Sólgörðum í Fljótum. Minni á skíðakennslu fyrir fullorðna er í dag frá kl 18-20 Veðurspá næstu daga er mjög góð svo nú er um að gera drífa sig í fjallið. Starfsfólkið tekur vel á móti ykkur  

Miðvikudaginn 30. mars opið kl 15-20

Skíðaparadísin í Skarðsdalnum verður opin í dag frá kl 15-20, fjölmennum nú í Skarðsdalinn góða, veðrið kl 12:30 logn, hiti 2 stig og léttskýjað, færið er troðinn þurr snjór í bland við blautan s s gott færi fyrir alla. Skíðakennsla fyrir fullorðna er í dag frá kl 18-20 Veðurspá næstu daga er mjög góð, drífa sig nú í fjallið Starfsfólkið tekur vel á móti ykkur  

Þriðjudaginn 29. mars opið kl 15-19

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl. 15-19, veðrið kl 14:30 logn, hiti 3 stig og léttskýjað, færið er troðinn  þurr og blautur snjór í bland, mjög gott færi í öllum brekkum fyrir alla. Það verður fullorðins kennsla á miðvikudaginn 30. mars og fimmtudaginn 31. mars kl 18-20, kennari verður Benedikt Hallgrímsson frá Ólafsfirði. Skíðasvæðið lánar þeim sem vilja prófa búnað og er frítt í lyftur. Endilega að nýta ykkur þetta tækifæri. Mjög gott er að tilkynna sig inn í síma 467-1806, það er gott fyrir okkur á sjá hvað margir koma til með að nýta sér þessa kennslu. Velkomin í fjallið Starfsfólk

Mánudaginn 28. mars opið kl 14-19

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 14-19, veðrið kl 11:00 austan gola, frost 3 stig og alskýjað, færið er troðinn þurr snjór í bland við blautan. Það verður fullorðins kennsla á miðvikudaginn 30. mars og fimmtudaginn 31. mars kl 18-20, kennari verður Benedikt Hallgrímsson frá Ólafsfirði. Skíðasvæðið lánar þeim sem vilja prófa búnað og er frítt í lyftur. Endilega að nýta ykkur þetta tækifæri. Mjög gott er að tilkynna sig inn í síma 467-1806, það er gott fyrir okkur á sjá hvað margir koma til með að nýta sér þessa kennslu. Velkomin í fjallið starfsfólk  

Sunnudaginn 27. mars opið kl 10-16

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 10-16, veðrið kl 13:00 austan gola, frost 1 stig, en það er smá þoka, en er að að létta til á svæðinu og er skyggnið að batna, opnum Neðstu-lyftu og T-lyftu til að byrja með. Veðurspá dagsins: Hæg breytileg átt, skýjað og þurrt að mestu. Lítilsháttar slydda í nótt og morgun. Hiti 0 til 5 stig. Þeir sem eiga vetrarkort á skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli,  Dalvík og Fjallabyggð geta skíðað á svæðunum um helgina. Vetrarkortshafar framvísa vetrarkortum sínum í afgreiðslu hvers skíðasvæðis og fá þar helgarpassa.  Þetta verður önnur skiptihelgin af þremur sem boðið verður uppá í vetur. Það verður fullorðins kennsla á miðvikudaginn 30. mars og fimmtudaginn 31. mars kl 18-20, kennari verður Benedikt Hallgrímsson frá Ólafsfirði. Skíðasvæðið lánar þeim sem vilja prófa búnað og er frítt í lyftur. Endilega að nýta ykkur þetta tækifæri. Mjög gott er að tilkynna sig inn í síma 467-1806, það er gott fyrir okkur á sjá hvað margir koma til með að nýta sér þessa kennslu. Starfsfólk