Þriðjudaginn 29. mars opið kl 15-19

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl. 15-19, veðrið kl 14:30 logn, hiti 3 stig og léttskýjað, færið er troðinn  þurr og blautur snjór í bland, mjög gott færi í öllum brekkum fyrir alla.

Það verður fullorðins kennsla á miðvikudaginn 30. mars og fimmtudaginn 31. mars kl 18-20, kennari verður Benedikt Hallgrímsson frá Ólafsfirði. Skíðasvæðið lánar þeim sem vilja prófa búnað og er frítt í lyftur. Endilega að nýta ykkur þetta tækifæri. Mjög gott er að tilkynna sig inn í síma 467-1806, það er gott fyrir okkur á sjá hvað margir koma til með að nýta sér þessa kennslu.

Velkomin í fjallið

Starfsfólk