Sunnudaginn 27. mars opið kl 10-16

Oft er mikið líf og fjör við Skíðaskálan
Oft er mikið líf og fjör við Skíðaskálan

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 10-16, veðrið kl 13:00 austan gola, frost 1 stig, en það er smá þoka, en er að að létta til á svæðinu og er skyggnið að batna, opnum Neðstu-lyftu og T-lyftu til að byrja með.

Veðurspá dagsins: Hæg breytileg átt, skýjað og þurrt að mestu. Lítilsháttar slydda í nótt og morgun. Hiti 0 til 5 stig.

Þeir sem eiga vetrarkort á skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli,  Dalvík og Fjallabyggð geta skíðað á svæðunum um helgina.

Vetrarkortshafar framvísa vetrarkortum sínum í afgreiðslu hvers skíðasvæðis og fá þar helgarpassa.  Þetta verður önnur skiptihelgin af þremur sem boðið verður uppá í vetur.

Það verður fullorðins kennsla á miðvikudaginn 30. mars og fimmtudaginn 31. mars kl 18-20, kennari verður Benedikt Hallgrímsson frá Ólafsfirði. Skíðasvæðið lánar þeim sem vilja prófa búnað og er frítt í lyftur. Endilega að nýta ykkur þetta tækifæri. Mjög gott er að tilkynna sig inn í síma 467-1806, það er gott fyrir okkur á sjá hvað margir koma til með að nýta sér þessa kennslu.

Starfsfólk