Mánudaginn 28. mars opið kl 14-19

Við efrienda á T-lyftu
Við efrienda á T-lyftu

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 14-19, veðrið kl 11:00 austan gola, frost 3 stig og alskýjað, færið er troðinn þurr snjór í bland við blautan.

Það verður fullorðins kennsla á miðvikudaginn 30. mars og fimmtudaginn 31. mars kl 18-20, kennari verður Benedikt Hallgrímsson frá Ólafsfirði. Skíðasvæðið lánar þeim sem vilja prófa búnað og er frítt í lyftur. Endilega að nýta ykkur þetta tækifæri. Mjög gott er að tilkynna sig inn í síma 467-1806, það er gott fyrir okkur á sjá hvað margir koma til með að nýta sér þessa kennslu.

Velkomin í fjallið starfsfólk