Fréttir

Föstudaginn 22. janúar opið

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 14-19, veðrið er mjög gott S-gola, hiti um 2-4 stig og heiðskírt, færið er unnið harðfenni, en það er búið að lina upp allar brekkur sem eru inn svo það er ágætis færi fyrir alla, allar lyftur verða í gangi í dag. Brekkur sem eru inn í dag eru T-brekka að hluta, Stálmasturbrekka, Þvergilið, brekka fyrir ofan Skíðaskála og það eru allar brekkur inn á Búngusvæðinu Velkomin í fjallið starfsmenn

Fimmtudaginn 21. janúar lokað vegna veðurs

Skíðasvæðið verður lokað í dag vegna veðurs. Svæðið verður opið á morgun föstudaginn 22. janúar kl 14-19, það lítur vel út með færi og veður um helginna, nýjar upplýsingar á morgun um kl 11:00 Starfsmenn        

Miðvikudaginn 20. janúar opið

Skíðasvæðið er opið í dag frá 16-19, veðrið er mjög gott N-gola hiti um 4 stig og léttskýjað, færið er unnið harðfenni, við verðum með opnar Neðstu-lyftu og T-lyftu. Brekkur sem eru inn í dag eru T-brekka að hluta, Stálmasturbrekka, Þvergilið og brekka fyrir ofan Skíðaskála. Velkomin í fjallið starfsmenn

Mánudaginn 18. janúar lokað vegna veðurs

Skíðasvæðið er lokað í dag vegna veðurs, veðrið kl 14:30 er SV 8-12 m/sek og meira í hviðum, 2 stiga hiti og alskýjað. Við opnum á miðvikudaginn 20. janúar kl 15-19, nánari upplýsingar um kl 12 á miðvikudaginn. Starfsfólk

Sunnudaginn 17. janúar opið

Skíðavæðið er opið í dag frá kl 10-16, veðrið kl 09:00 er SV-gola, hiti um 2 stig, smá úrkoma og alskýjað, færið er unnið harðfenni ljómandi færi fyrir alla og allar lyftur í gangi. Heitt kakó eða kaffi og meðlæti í skíðaskálanum. Velkomin í fjallið starfsmenn

Laugardaginn 16. janúar opið

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 10-16, veðrið kl 09:00 er ASA 4-6 m/sek, hiti um 2-4 stig, lítilsháttar úrkoma og skýjað, færið er unnið harðafenni ágætt færi fyrir flesta. Við eru með allar lyftur í gangi. Neðsta-lyftan: er flutningsleið að T-lyftu, það er leið frá efrienda lyftunnar niður veginn, einnig er brekka beint niður að Skíðaskála. T-lyfta: Lyftulínan er góð, T-brekkan endar við veginn fyrir ofan Markhús og þar er gott rennsli norður veginn að Þvergilinu og er góð brekka niður Þvergilið að T-lyftu. Búngu-lyfta: er í mjög góðu standi allar brekkur mjög góðar. Velkomin í fjallið starfsmenn

Föstudaginn 15. janúar opið

Skíðasvæði verður opið í dag frá kl 14-19, veðrið er ASA 2-5 m/sek, hiti 2 stig og heiðskírt, færið er unnið haðfenni gott færi. Allar lyftur eru opnar. Neðsta-lyftan: er flutningsleið að T-lyftu, það er leið frá efrienda lyftunnar niður veginn, einnig er brekka beint niður að Skíðaskála. T-lyfta: Lyftulínan er góð, T-brekkan endar við veginn fyrir ofan Markhús og þar er gott rennsli norður veginn að Þvergilinu og er góð brekka niður Þvergilið að T-lyftu. Búngu-lyfta: er í mjög góðu standi allar brekkur mjög góðar. Velkomin í fjallið starfsmenn

Fimmtudaginn 14. janúar opið

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 15-19, færið er unnið harðfenni og veðrið er mjög gott NNV gola, hiti 2-4 stig og heiðskírt, það verða allar lyftur í gangi. Neðsta-lyftan: er flutningsleið að T-lyftu, það er leið frá efrienda lyftunnar niður veginn, einnig er brekka beint niður að Skíðaskála. T-lyfta: Lyftulínan er góð, T-brekkan endar við veginn fyrir ofan Markhús og þar er gott rennsli norður veginn að Þvergilinu og er góð brekka niður Þvergilið að T-lyftu. Búngu-lyfta: er í mjög góðu standi allar brekkur mjög góðar. Ath. starfsmenn biðja skíðamenn að fara varlega. Velkomin í fjallið starfsmenn

Miðvikudaginn 13. janúar opið

Skíðasvæðið verður opið  í dag frá kl 16-19, veðrið er mjög gott S-gola, 3 stiga hiti og heiðskírt, færið er unnið harðfenni, allar lyftur keyrðar. Neðsta-lyftan: er flutningsleið að T-lyftu, það er leið frá efrienda lyftunnar niður veginn, einnig er brekka beint niður að Skíðaskála. T-lyfta: Lyftulínan er góð, T-brekkan endar við veginn fyrir ofan Markhús og þar er gott rennsli norður veginn að Þvergilinu og er góð brekka niður Þvergilið að T-lyftu. Búngu-lyfta: er í mjög góðu standi allar brekkur inni. Ath. starfsmenn biðja skíðamenn að fara varlega. Velkomin í fjallið starfsmenn

Mánudaginn 11. janúar opið

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 15-18, það er sunnan gola og hiti um 2-3 stig. Við opnum eingöngu Neðstu-lyftu og T-lyftu. Ath. færið er unnið harðfenni og er nokkuð hart víða í fjallinu. Velkomin í fjallið starfsmenn