Fimmtudaginn 14. janúar opið

Það er frábært að skíða í ljósunum.
Það er frábært að skíða í ljósunum.

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 15-19, færið er unnið harðfenni og veðrið er mjög gott NNV gola, hiti 2-4 stig og heiðskírt, það verða allar lyftur í gangi.

Neðsta-lyftan: er flutningsleið að T-lyftu, það er leið frá efrienda lyftunnar niður veginn, einnig er brekka beint niður að Skíðaskála.

T-lyfta: Lyftulínan er góð, T-brekkan endar við veginn fyrir ofan Markhús og þar er gott rennsli norður veginn að Þvergilinu og er góð brekka niður Þvergilið að T-lyftu.

Búngu-lyfta: er í mjög góðu standi allar brekkur mjög góðar.

Ath. starfsmenn biðja skíðamenn að fara varlega.

Velkomin í fjallið starfsmenn