Laugardaginn 16. janúar opið

Drífa sig á skíði
Drífa sig á skíði

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 10-16, veðrið kl 09:00 er ASA 4-6 m/sek, hiti um 2-4 stig, lítilsháttar úrkoma og skýjað, færið er unnið harðafenni ágætt færi fyrir flesta.

Við eru með allar lyftur í gangi.

Neðsta-lyftan: er flutningsleið að T-lyftu, það er leið frá efrienda lyftunnar niður veginn, einnig er brekka beint niður að Skíðaskála.

T-lyfta: Lyftulínan er góð, T-brekkan endar við veginn fyrir ofan Markhús og þar er gott rennsli norður veginn að Þvergilinu og er góð brekka niður Þvergilið að T-lyftu.

Búngu-lyfta: er í mjög góðu standi allar brekkur mjög góðar.

Velkomin í fjallið starfsmenn