Miðvikudaginn 13. janúar opið

Velkomnir á svæðið
Velkomnir á svæðið

Skíðasvæðið verður opið  í dag frá kl 16-19, veðrið er mjög gott S-gola, 3 stiga hiti og heiðskírt, færið er unnið harðfenni, allar lyftur keyrðar.

Neðsta-lyftan: er flutningsleið að T-lyftu, það er leið frá efrienda lyftunnar niður veginn, einnig er brekka beint niður að Skíðaskála.

T-lyfta: Lyftulínan er góð, T-brekkan endar við veginn fyrir ofan Markhús og þar er gott rennsli norður veginn að Þvergilinu og er góð brekka niður Þvergilið að T-lyftu.

Búngu-lyfta: er í mjög góðu standi allar brekkur inni.

Ath. starfsmenn biðja skíðamenn að fara varlega.

Velkomin í fjallið starfsmenn