11.03.2008
Við tókum nokkrar myndir í dag upp í Skarði. Sjá undir myndir hér að ofan.
11.03.2008
Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl. 16-19. Gönguhringur við Hól er klár. Veðrið hérna er mjög gott,
sól, logn og 4 stiga frost. Færi er mjög gott. Allir velkomnir á skíði.
10.03.2008
Skíðasvæðið verður Opið í dag vegna þess hversu gott veður er. Einnig er mjög gott skíðafæri. Nú er
að nýta þetta frábæra veður og skella sér á Skíði
Einnig er búið að ákveða opnunartíma um páskana, eins og sést hér að ofan. Nánari dagskrá í fjallinu
verður auglýst von bráðar.
09.03.2008
Opnað verður kl. 11 hér uppfrá er frekar takmarkað skigni eins og er , hálfgerð þoka, vonumst að birti eftir hádegi, gönguhringur hefur
verið lagður við Hól.
08.03.2008
Búið er að opna neðstu og T lyftu, gott færi og logn. Bungulyfta er klár að öðruleyti en því að þoka er uppi og vonumst við
að birti eftir hádegi, verið velkominn á skiði. Einnig er búið að leggja gönguhring við Hól.
07.03.2008
Búið að opna neðstu og T lyftur gott færi gott veður, einnig hefur verið lagður gönguhringur við Hól. Notfærið ykkur veðrið og
skellið ykkur á skiði.
06.03.2008
Þetta er skrifað kl.2 þá er gottveður hér uppfrá hiti um frostmark sunnan gola færi gott aðeins blint, stefnt er að opna neðstu og T lyftur
kl. 16 til 19. Einnig hefur verið lagður gönguhringur við Hól.
05.03.2008
Lokað í dag vegna veðurs,norðaustan strekkingur og snjókoma.
04.03.2008
Lyftur verða opnaðar kl 16. neðsta og T lyftur, hér uppi er hiti um frostmark og snjókoma en logn,verið velkominn á skíði
02.03.2008
Loksins komið veður til að hafa opið, neðsta og T lyftur verða klárar kl 11 búngulyfta vonandi eitthvað síðar, eigum við alveg eftir að
troða búnguna,hér er nægur snjór, gott færi og gott veður bjóðum alla velkomna á skíði