Fréttir

Laugardaginn 29. mars opið kl 10-16

Opið í dag frá kl 10-16. Veðrið er mjög gott vestan gola, frost 1 stig og heiðskírt. Færið er unnið harðfenni en mun mýkjast þegar líður á daginn. Göngubraut á Hólssvæði eftir troðara en ekkert spor. Velkomin í fjallið Starfsmenn

Föstudaginn 28. mars opið kl 13-19

Opið í dag frá kl 13-19. Veðrið kl 08:00 vestan gola, frost 1 stig og heiðskírt. Veðurútlit næstu daga er mjög gott. Færið er unnið harðfenni en mun mýkjast þegar líður á daginn. Ath. Utanbrautarfæri er töluvert harðfenni, farið varlega en sólin mýkir allt svæðið þegar líður á daginn. Opnum 2 lyftur til að byrja með og opnum við næstu 2 þegar líður á daginn. Göngubraut lögð eftir troðara verður klár á Hólssvæði kl 10:00 en ekkert spor. Velkomin á skíði í dag. Starfsmenn

Fimmtudaginn 27. mars opið kl 14-19

Opið í dag frá kl 14-19. Vestan gola, hiti 2 stig og alskýjað. Færið er troðinn rakur snjór en snjórinn er þurrari eftir því sem ofar kemur. Erum að púsla saman Hálslyftu og vonandi getum við keyrt hana í dag. Velkomin í Skarðsdalinn Starfsmenn

Enginn titill

Miðvikudaginn 26. mars opið kl 14-19

Opið í dag frá kl 14-19. Veðrið kl 14:50 austan gola, 11 stiga hiti og léttskýjað. Færið er troðinn rakur snjór en er þurr fyrir ofan miðja T-lyftu. Búngulyfta fer vonandi í gang kl 16:00 í dag. Nú eru frábærir dagar framundan í Skarðsdalnum logn, sól og blíða eins og veðurspár ná. Velkomin í fjallið Starfsmenn

Þriðjudaginn 25. mars lokað í dag vegna hvassviðris

Kl 15:00 Það er lokað í dag vegna hvassviðris. Nýjar upplýsingar í fyrramáli kl 10:00 Umsjónarmaður Lokað eins og er vegna hvassviðris. Veðrið kl 13:00 SV 10-20m/sek, hiti 1 stig. Nýjar upplýsingar kl 15:00 Umsjónarmaður

Mánudaginn 24. mars opið kl 14-19

Fjallafjör alla Páskavikunna allt miðað við fjölskylduna. Leikjabraut, Páskaeggjabraut, Fjölskylduþrautabraut, Barnagæsla, Lifandi tónlist, Fjallaskíðamót á Tröllaskaga og fl og fl.  Sumarrennsli í Skarðsdalnum 17 og 18 maí þar sem boðið verður upp á keppni frá Siglufjarðarskarði og niður að Skíðaskála 4 keppa í einu. Létt grill á eftir. Þeir 4 sem sýna beztu tilþrifin fá að launum vetrakort 2014-15 í Skarðsdalinn. Þessi keppni er fyrir alla. Opið í dag frá kl 14-19. Veðrið er mjög gott SA gola, 3 stiga hiti og alskýjað. Færið er troðinn þurr snjór. Mjög gott utanbrautarfæri. Allir framhaldsskólanema 18 ára og eldri í Fjallabyggð fá aðgang í lyftur á barnagjaldi kr 700,- meðan skólahald liggur niðri. Erum að vinna við að koma Búngusvæði í gang en ekki er víst að það gangi í dag. Velkomin í fjallið Starsfmenn

Sunnudaginn 23. mars opið kl 10-16

Opið í dag frá kl 10-16. Veðrið kl 10:45 SSW gola, frost 5 stig og dálítil él. Veðurútlit fyrir daginn er mjög gott, það á að birta til.  Færið er troðinn þurr snjór. Opnum Neðstu-lyftu og T-lyftu. Vonandi getum við gert allar lyftur klárar í vikunni. Göngubraut á Hólssvæði ca 2,5 km. Velkomin í fjallið Starfsmenn

Laugardaginn 22. mars lokað

Í dag verður lokað vegna mikillar vinnu á svæðinu. Það þarf að vinna í ca 10 tíma til að koma tveimur neðrisvæðunum í gott horf og svo þurfum við að byrja á því að moka snjó útúr troðurum. Stefnum á að opna á morgun sunnudaginn 23. mars kl 10-16   Nýjar upplýsingar á morgun kl 08:00 Umsjónarmaður

Föstudaginn 21. mars lokað vegna veðurs

Kl 18:00 Erum að stefna á það að byrja vinnu í fjallinu í fyrramálið eða þegar veðrið gengur niður og er mikil vinna við mokstur og troðslu framundan og er ekki alveg ljóst nú hvort við getum opnað á morgun. Nýjar upplýsingar á morgun kl 09:00 Í dag verður lokað vegna veðurs, en er NA leiðindi 15-25m/sek, frost 3 stig og mikill skafrenningur. Það verð nýjar upplýsingar inn á heimasíðu, facebook og 878-3388 kl 17:00 í dag um næstu skref hjá okkur, en samkvæmt veðurspá á þetta leiðinda veður að ganga niður í nótt og er veðurspá fyrir helginna góð. Vonandi tekst okkur að vinna svæðið um leið og veður lægir þannig að við verðum klárir á morgun. Umsjónarmaður