Fréttir

Miðvikudaginn 13. janúar opið

Skíðasvæðið verður opið  í dag frá kl 16-19, veðrið er mjög gott S-gola, 3 stiga hiti og heiðskírt, færið er unnið harðfenni, allar lyftur keyrðar. Neðsta-lyftan: er flutningsleið að T-lyftu, það er leið frá efrienda lyftunnar niður veginn, einnig er brekka beint niður að Skíðaskála. T-lyfta: Lyftulínan er góð, T-brekkan endar við veginn fyrir ofan Markhús og þar er gott rennsli norður veginn að Þvergilinu og er góð brekka niður Þvergilið að T-lyftu. Búngu-lyfta: er í mjög góðu standi allar brekkur inni. Ath. starfsmenn biðja skíðamenn að fara varlega. Velkomin í fjallið starfsmenn

Mánudaginn 11. janúar opið

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 15-18, það er sunnan gola og hiti um 2-3 stig. Við opnum eingöngu Neðstu-lyftu og T-lyftu. Ath. færið er unnið harðfenni og er nokkuð hart víða í fjallinu. Velkomin í fjallið starfsmenn  

Sunnudaginn 10 janúar opið

 Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 11-16, veðrið kl 09:30 er SSW 6-10 m/sek og  vindur hjá okkur fer upp í 16 m/sek í hviðum á efrasvæðinu en smamkvæmt veðurspá á veðrið að lagast þegar líður á daginn og hitinn á svæðinu er um 7 stig, opnar lyftur til að byrja með Neðsta-lyfta og T-lyfta og vonandi getum við opnað Búngu-lyftu fljótlega eftir opnun. Ath. það hefur tekið upp töluvert af snjó á svæðinu og ég bið gesti að fara varlega það eru víða grjót sem standa upp úr á svæðinu. Velkomin í fjallið Starfsmenn

Laugardaginn 9. janúar

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 12-16, veðrið kl 11:00 er SV 4-7 og aðeins meira í hviðum, hiti 6 stig og léttskýjað, við opnum til að byrja með Neðstu-lyftu og T-lyftu, færið er troðinn rakur snjór mjög gott færi fyrir alla. Það er gaman að geta þess að í heimsókn hjá okkur í fjallinu er æfinga hópur rúmlega 20 manns úr Ármanni frá Reykjavík og fleiri góðir gestir. Velkomin í fjallið starfsmenn.

Föstudaginn 8. janúar opið

Skíðasvæðið verður opið í dag frá  kl 14-19, veðrið kl 10:00 SV 5-8m/sek og aðeins meiri vindur á efrasvæðinu +3c¨° og léttskýjað, færið er troðinn rakur snjór en ágætis færi á efrasvæðinu , við stefnum á að opna allar lyftur. Ath. veðurspá kl 10 er SV vindur fyrir helginna sem getur verið okkur erfiður. Velkomin í fjallið Starfsmenn

Fimmtudaginn 7. janúar opið

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 15-19, veðrið er SV 6-9m/sek og meira í hviðum, -1c° og alskýjað, færið er troðinn þurr snjór mjög gott færi, við verðum með Neðstu-lyftu og T-lyftu opnar. Árskort er góður kostur fyrir þá sem stunda skíði reglulega t d bara um helgar. Velkomin í fjallið starfsfólk.

Miðvikudaginn 6. janúar 13 dag jóla opið

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 15-18, við lokum klukkutíma fyrr vegna þrettándagleði sem fram fer í dag kl 18 og við fjölmennum þangað. Veðrið er SV 3-6m/sek, frost 1 stig og alskýjað, færið er nýr snjór á öllu svæðinu og allar lyftur keyrðar. Velkomin í fjallið.

Þriðjudaginn 5. des lokað

Skíðasvæðið er lokað í dag en opnar aftur á morgun kl 15-19, nánari upplýsingar um kl 12 á morgun miðvikudaginn 6. jan. Opnunardagar í desember voru 15 og gestir um 800. Takk fyrir komuna. Starfsfólk

Mánudaginn 4. janúar opið

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 13-18 veðrið er NA-3-4m/sek, -5 stig og léttskýjað, færið troðinn þurr snjór mjög gott færi fyrir alla, allar lyftur keyrðar. Velkomin í fjallið. Starfsmenn  

Sunnudaginn 3. janúar opið

Skíðasvæðið er opið í dag frá kl 10-16, veðrið kl 09:00 SV 3-5m/sek, frost 4 stig og heiðskírt, færið er troðinn þurr snjór og það verða allar lyftur í gangi. Við biðjum skíðafólk að fara varlega á neðstasvæðinu. Velkomin í fjallið starfsfólk.