06.04.2009
Opið verður í dag frá kl 13-19, veðrið er mjög gott það er logn, um 0c° og sólin er að brjótast í gengn, við keyrum
allar lyftur, göngubraut verður tilbúinn um kl 15:00.
Fróðleiksmoli dagsins:
Afkastageta lyftana er um 1750 manns á klukkutíman, fallahæði svæðisins er um 500 metrar, lyftulengd er um 2 km og brautarlengd eru um 2,3 km eftir
þeirri leið sem valin er.
Velkomin á skíði starfsmenn.
05.04.2009
Opið verður í dag frá kl 10-16, veðrið er mjög gott logn, heiðskírt og sól, -1c°, færið er eining mjög gott troðinn
þurr snjór og allar brekkur klárar.
Við keyrum Neðstu-lyftu, T-lyftu og Búngu-lyftu, göngubraut er klár í Hólsdalnum.
Nú er um að gera njóta dagsins og góða veðursins.
Velkomin á skíði starfsmenn
04.04.2009
Opið verður í dag frá kl 10-16, veðrið er mjög gott S og SV 6-8 m/sek, -1c° og heiðskírt (sól). Færið er troðinn þurr
snjór.
Allar lyftur eru opnar, göngubraut er við Hól
Velkomin á skíði starfsmenn.
03.04.2009
Opið verður í dag frá kl 16-19, veðrið á svæðinu NA 5-10m/sek, +1c° á neðrasvæðinu en um -2c° á
efrasvæði og alskýjað, það er troðinn blautur snjór á neðrasvæðinu en troðinn þurr snjór í
efrasvæðinu.
Við opnum eingöngu Neðstu-lyftuna, göngubraut verður tilbúinn um kl 15:00 við Hól.
Umsjónarmaður skíðasvæðis biður skíðamenn að skíða ekki fyrir ofan neðstasvæðið og virða
það.
Velkomin á skíði starfsmenn.
02.04.2009
Lokað verður í dag vegna veðurs, það er NA-12-16m/sek og meira í hviðum, það er verið að vinna á öllu svæðinu og enn
er verið að moka snjó burt af svæðinu, hann telst í metrum á Búngusvæðinu, við verðum vonandi tilbúnir með allt
svæðið á morgun um kl 14:00.
Nánari fréttir á morgun um kl 10:00
01.04.2009
Við verum að hafa lokað í dag við erum að vinna brekkurnar og það mun taka allan daginn og fram á kvöld, við opnum á morgun kl 14:00,
nánari upplýsingar um kl 12 á morgun.
Starfsmenn.
31.03.2009
Lokað í dag vegna veðurs.
Við opnun á morgun miðvikudaginn 1. apríl, nánari upplýsingar á morgun kl 12:00
Starfsmenn.
29.03.2009
Við höfum lokað í dag vegna veðurs, opnum á þriðjudaginn 31. mars kl 14:00 nánari upplýsingar um það á
þriðjudaginn um kl 12:00.
Starfsmenn
29.03.2009
Opið verður í dag frá kl 10-16, veðrið er N-gola, -5c° og smá éljagangur, færið er nýr troðinn snjór.
Við opnum Neðstu-lyftu og T-lyftu, göngubraut er tilbúinn við Hól og nú er um að gera drífa sig á skíði sem fyrst
veðrið gæti versnað þegar líður á daginn.
Velkomin á skíði starfsmenn.
28.03.2009
Opið verður frá kl 10-16, veðrið er eins og það gerist best logn, heiðskírt(sól) og -8c°, færið er líka eins og
það gerist best troðinn harðpakkaður nýr snjór. Nú er um að gera að drífa sig út í góða verðrið og
njóta dagsins "frábær dagur framundan í norðlensku ölpunum"
Við keyrum allar lyftur og göngubraut er við Hól
Velkomin á skíði starfsmenn