Fréttir

Miðvikudaginn 20. des lokað/closed

Það verður lokað í dag, en það jákvæða við daginn í dag að það er éljagangur og verður svo í dag.  Nýjar upplýsingar kl 10: 00 á morgun        Starfsmenn

Mánudaginn 18. desember lokað/closed

Lokað verður í dag mánudaginn 18. des og á morgun þriðjudaginn 19. des. Það gengur mikill hiti yfir núna ca 6-8 stiga hiti og fylgir töluverður vindur af SW, en það frystir aftur á morgun. Nýjar upplýsingar á miðvikudaginn 20. des kl 10:00 Nú fer hver að verða síðastur að kaupa kortin á þessu verði Minni á tilboð sem gildir til 24 des á vetrarkortum  Fullorðins kr 22.500.-  Börn 9-17ára kr 9.000.-  Háskóla og framhaldsnemar kr 13.500.- Kortin eru til sölu í Aðalbakaríinu og einnig er hægt að leggja inn á 348-26-1254 kt 640908-0680 og senda kvittun í tp á skard@simnet.is

Sunnudaginn 17. desember lokað/closed

Það er lokað í dag vegna hvassviðris kl 08:30 SW 8-20m/sek og verður þessi vindur í dag hér í dalnum góða.

Laugardaginn 16. desember opið/open kl 11-16

Opið í dag frá kl 11-16, veðrið er mjög gott SA gola, frost 7 stig og léttskýjað, færið er troðinn þurr snjór og er mjög gott færi í troðnum brekkum. Æfintýraleið og skíðaleið er frá T-lyftusvæðið og út í Þvergil. Það er ljómandi færi til að fara á fjöll í dag. Flottur dagur framundan í dag. Velkomin í Skarðsdalinn

Föstudaginn 15. desember opið/open kl 16-19

Opið í dag frá kl 16-19, veðrið kl 10:00 er WSW 0-3 m/sek, frost 6 stig og éljagangur og verður svipað veður til kl 15:00 í dag en þá minkar éljagangurinn. Færið er troðinn nýr þurr snjór og er gaman að fá hvíta gullið, dásamlegt. Það verður flott veður og færi í dag.   Seinkum aðeins opnun í dag og leyfum hvíta gullinu að koma og troðum aðeins seina í dag.             Velkomin í fjallið

Fimmtudaginn 14. desember opið/open kl 15-19

Opið í dag frá kl 15-19, veðrið kl 16:00 NNA 0-3m/sek, frost 6 stig og léttskýjað. Færið er troðinn þurr snjór, það kom aðeins snjór í brekkurnar. Ágæstis færi er í troðnum brekkum, Það er troðinn Æfintýraleið á Neðstasvæðinu og leið út í Þvergil á T-lyftusvæði. Velkomin í fjallið 

Miðvikudaginn 13. des lokað/closed

Lokað verður í dag vegna vinds, en það jákvæða er að það snjór aðeins hjá okkur. Eftir daginn í dag lítur mjög vel út með veður næstu 3-4 daga.

Þriðjudaginn 12. desember lokað/closed

Það verður lokað í dag, en opnum aftur á morgun miðvikudaginn 13. des. Nýjar upplýsingar kl 10:00 á morgun Minni á tilboð sem gildir til 24 des á vetrarkortum Fullorðins kr 22.500.- Börn 9-17ára kr 9.000.- Háskóla og framhaldsnemar kr 13.500 Kortin eru til sölu í Aðalbakaríinu og einnig er hægt að leggja inn á 348-26-1254 kt 640908-0680 og senda kvittun í tp á skard@simnet.is Sjáumst hress

Mánudaginn 11. des opið/open

Opið í dag frá kl 15-19, veðrið er mjög gott logn, frost 7 stig og heiðskírt.

Sunnudaginn 10 desember opið/open kl 11-16

Opið í dag frá kl 11-16, veðrið kl 08:00 logn, frost 6 stig og léttskýjað, færið er troðinn þurr snjór, en það er lítill snjór og geta verið steinar í brekkum svo farið varlega.