Fréttir

Páskadagur opið kl 10-16 Gleðilega páska

Opið í dag frá kl 10-16, veðrið kl 09:00 ASA gola, hitastig er um frostmark og er alskýjað. Færið er troðinn blautur snjór.  Það er góður snjór í Skarðsdalnum. Páskaeggjamót fyrir 10 ára og yngri hefst kl 13:00 og er á Neðstasvæðinu. Erum að athuga með göngubraut, það hefur minnkað töluvert snjórinn í Hólsdalnum. Velkomin á skíði í dag. Starfsmenn

Páskadagur opi kl 10-16

Opið í dag frá kl 10-16, veðrið kl 07:00 ASA gola, frostmark en alskýjað. Færið er troðinn blautur snjór. Páskaeggja mót fyrir 10 ára og yngri hefst kl 13:00 og er á Neðstasvæðinu. Erum að athuga með göngubarut, það hefur minkað töluvert snjórinn í Hólsdalnum. Velkomin á skíði í dag. Starfsmenn

Laugardaginn 4. apríl kl 14:00 höfum lokað

Alltaf gaman að leika sér af tölum en í dag var opið í 3 tíma og voru gestir um 90 en á laugardeginu fyrir páska í fyrra  fóru 1190 manns í gengum hliðið og margir þurftu frá að hverfa því miður. Það verður bara blíða á morgun, sjáumst hress. Nánast skírdagsveður á morgun. Kl 14:00 Lokað opnum á morgun kl 10-16  Opið í dag frá kl 10-16, veðrið kl 09:40 SSA 3-6m/sek, 4 siga hiti og töluverð rigning. Takið daginn snemma það fer að hvassa og rigna þegar líður á daginn. Allar brekkur troðnar og er snjórinn þurrari eftir því sem ofar kemur. Göngubraut er klár í Hólsdalnum  Ath. öll vélsleða umferð er bönnuð á skíðasvæðinu og er mikil umferð af skíðafólki sem rennir sér meðfram Skarðsveginum, þar eiga engir sleðar að vera. Þessi leið er troðin fyrir skíðafólk. Velkomin á skíði í dag. Starfsmenn

Enginn titill

Föstudaginn langi opið kl 10-16

Tveir góðir dagar að baki, í gær komu í Skarðsdalinn 650 manns og töluverður fjöldi var á gönguskíðum í Hólsdalnum og nú í dag voru gestir 750 manns og fjöldi manns var við aðra útivist hér á Sigló. Opnum kl 10-16 á morgun. Opið í dag frá kl 10-16. Sama veður blíðan logn, frost 1 stig og það er að birta til. Sú gula er komin upp.  Færið er troðinn þurr snjór og svo er flott færi í ótroðnu. Göngubraut tilbúinn í Hólsdalnum. Velkomin á skíði Starfsmenn.

Skírdagur 2. apríl opið kl 10-16

Opið í dag frá kl 10-16. Veðrið er bara frábært SA gola, frost 6 stig, heiðskírt og sólin baðar okkur í dag. Færið er troðinn þurr snjór og er meiriháttar færi bæði troðnum brautum og utan við. Göngubraut er tilbúinn á Hólssvæði Velkomin á skíði  í dag Starfsmenn  

Miðvikudaginn 1. apríl upplýsingar fyrir ykkur góðir gestir

Horfið hér til hægri á myndbandið, það kemur okkur öllum í skíðagírinn Upplýsingar um svæðið næstu daga. Neðstasvæðið: Troðinn brekka meðfram lyftu, Æfintýraleið, Bobbbraut, Leikjabraut og pallur. T-lyftusvæði: Troðinn brekka meðfram lyftu, Bobbbraut vestan við brekku og austan við lyftu troðinn leið niður að mastri nr 2 á T-lyftu. Hálslyftusvæði: Troðinn brekka meðfram lyftu og frískíðun hægramegin við lyftu. Búngulyftusvæði: Troðinn Búngubakki, Miðbakki niður að Hálslyftu, frískíðun norðan við og meðfram Búngulyftu og frískíðun á milli bakka. Ath Innrileið verður ekki troðinn. Það er flottur nýr snjór á svæðinu. Göngubraut troðin í Hólsdalnum. Smá upplýsingar um hvað Skarðsdalurinn hefur uppá að bjóð. Nýjar upplýsingar kl 08:00 í fyrramáli. Sjáumst hress á morgun. Velkomin í Fjallabyggð

Miðvikudaginn 1. apríl opið kl 15:00:-19:00

Kl 13:40. Opnum kl 15:00-19:00 veðrið er að ganga niður. Veðrið kl 16:00 NNA 3-10m/sek, éljagangur og frost 6 stig, en skyggnið er erfitt og er birtan að koma og fara. Það er verið að moka veginn með stórum blásara (farið varlega) Setjum Neðstulyftu og T-lyftu. Það hefur verið mjög erfitt að vinna berkkurnar vegna veðurs. Göngubraut verður tilbúinn kl 16:00 á Hólssvæði Velkomin á skíði Starfsmenn Það er lokað eins og er, það er ekkert skyggni eins og er. töluverður éljagangur og er norðan vindur 6-15m/sek og er frost 6 stig.  Miðað við veðurspá á að lægja birta til eftir hádegið. Nýjar upplýsingar kl 14:00 Starfsmenn