Fréttir

Föstudaginn 3. janúar lokað það er stormur á svæðinu

Kl 15:00 Lokað í dag vegna veðurs.  Þegar þessar línur eru skrifaðar, er NA stormur og mikið ísingaveður og er mesta hviða í dag 3.janúar 42m/sek og eru höld komin niður á jörð í T-lyftu, Hálslyftu og Búngulyftu.  Nýjar upplýsingar á morgun kl 10:00 Starfsmenn Í dag erum við með opnun í skoðun. Veðrið kl 10:00 ANA stormur, frostmark. Skoðum í dag kl 15:00 hvort hægt verður að opna kl 16:00. Veðurspá dagsins: Strandir og Norðurland vestra Norðaustan 15-25 m/s og slydda, en sums staðar snjókoma inn til landsins. Hægari og úrkomuminna um tíma síðdegis. Norðaustan 13-20 í kvöld og á morgun og rigning eða slydda. Hiti 0 til 3 stig. Starfsmenn

Fimmtudaginn 2. janúar 2014 Gleðilegt nýtt ár lokað í dag

Kl 13:30 Það verður lokað í dag vegna vinnu við að berja ísingu af lyftum. Nýja árið heilsar okkur með NA-átt og byrjar eins og það gamla endaði A og NA áttir ríkjandi. Í dag fimmtudaginn 2. janúar 2014erum við með opnun í skoðun vegna hvassviðris. Veðrið kl 10:00  NA 6-15m/sek og töluverður skafrenningur. Nýjar upplýsingar kl 13:00 Starfsmenn