Fréttir

Sunnudaginn 10. apríl lokað vegna vinds og aðstæðna.

Skíðasvæðið verður lokað í dag vegna vinds og aðstæðna, veðrið kl 14:00 á T-lyftusvæði er SV 2-10m/sek og á Búngusvæði er SV 10-15m/sek, hiti um 13 stig, færið á svæðinu er mjög erfitt og það þarf að moka snjó í Neðstasvæðið það er mjög erfitt í svo miklum hita, veðurspá er okkur ekki hagstæð í dag en það á að frysta í nótt, allt tilbúið á morgun. Veðurspá dagsins: Vaxandi sunnanátt, 13-20 síðdegis og rigning, en suðvestan 18-23 í kvöld og slydda. Dregur úr vindi í nótt, suðvestan 8-15 á morgun og slydduél. Hiti 3 til 8 stig, en 0 til 4 í nótt og á morgun. Opnun á morgun kl 14:00 nýjar upplýsingar kl 12:00. Upplýsingar eru ávallt uppfærðar inn á mbl.is og textavarp.is http://www.mbl.is/mm/frettir/skidasvaedi.html og textavarp.is  http://www.textavarp.is/544   Starfsfólk

Laugardaginn 9. apríl opið kl 10-16

Skíðasvæðið er opið í dag frá kl 10-16, veðrið kl 08:00 WSW 2-5m/sek, hiti 8 stig og léttskýjað, vorfæri, öllu svæði eru opin. Það þarf að fara varlega á Neðstasvæði og T-lyftusvæði, snjór hefur minkað töluvert en Búngusvæði er mjög gott.  Hólabraut, Bobbbraut og pallar í Þvergilinu nægur snjór þar, flott að frískíða niður Þvergilið, gönguhringur í Skarðsdalsbotni ca 2 km Síðasta skiptihelgi fyrir vetrarkortshafa 9-10 apríl Velkomin í fjallið Starfsfólk    

Föstudaginn 8. apríl opið kl 15-19

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 15-19, veðrið kl 14:00 VSV 4-10m/sek, hiti 6 stig og alskýjað, færið er troðinn þurr og blautur snjór það hefur snjóað aðeins hjá okkur, mjög gott færi fyrir alla, öll svæði verða opin í dag. Hólabraut, Bobbbraut, pallar í Þvergili og göngubraut í Skarðsdalsbotni ca 2 km. Veðurspá dagsins: Suðvestan og sunnan 5-13 m/s og úrkomulítið, hiti 5 til 12 stig í dag en heldur hlýrra á morgun. Síðasta skiptihelgi fyrir vetrarkortshafa 9-10 apríl Velkomin í fjallið Starfsfólk

Fimmtudaginn 7. apríl það er lokað í dag

Það er verður lokað í dag vegan veðurs, veðrið kl 14:45 WSW 4-15m/sek, rigning, hiti 5 stig og færið er mjög blaut og lint, opnum á morgun kl 15, nýjar upplýsingar kl 12:00 á morgun. Starfsfólk Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 15-19, veðrið kl 14:00 WSW 4-10m/sek, hiti 2 stig, slydda og alskýjað, færið troðinn blautur snjór en er þurrari eftir því sem ofar kemur, stefnum á að opna allar lyftur.  Göngubraut í Skarðsdalsbotni ca 2 km tilbúinn kl 16:00 Síðasta skiptihelgi fyrir vetrarkortshafa 9-10 apríl Veðurspá dagsins: Vaxandi suðvestanátt, víða 15-20 m/s síðdegis. Rigning og síðar skúrir. Hægari seint í kvöld. Hiti 2 til 7 stig. Sunnan 5-13 og súld eða rigning með köflum á morgun. Hlýnar heldur. Velkomin í fjallið

Miðvikudaginn 6. apríl opið kl 15-19

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 15-19, veðrið kl 16:15 WSW 5-10m/sek, hiti 3 stig og léttskýjað, miðað við veðurspá á að lægja þegar líður á daginn, opnum í dag Neðstasvæðið og T-lyftusvæðið. Göngubraut í Skarðsdalsbotni ca 2 km. Veðurspá dagsins: Suðvestan 8-13 m/s og skúrir eða él. Hiti 1 til 7 stig, Rigning eða slydda í fyrramálið, en suðvestan 13-20 og skúrir síðdegis á morgun. Velkomin í fjallið Starfsfólk  

Góða aðsókn í Siglfirsku alpana

Siglfirslu alparnir eru að verða eitt aðal aðdráttaraflið yfir veturinn fyrir ferðafólki og lætur nærri að 40% af gestum komi af Eyjafjarðarsvæðinu, þökk sé Héðinsfjarðargöngum  og er stöðug aukning ár frá ári af gestum frá suðvestur horninu.  

Þriðjudaginn 5. apríl lokað

Nú tökum við starfsfólkið okkur einn frídag fyrir lokaátökin, opnum á morgun kl 15 nýjar upplýsingar kl 12 á morgun. Göngubraut er tilbúinn með spori í Skarðsdalsbotni ca 2 km Sjáumst hress Starfsfólk  

Mánudaginn 4. apríl opið kl 14-20

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 14-20, í dag er frábært veður og færi austan gola, hiti 2 stig og heiðskírt, færið er troðinn þurr snjór og allar brekkur tilbúnar. Hólabraut, bobbbraut og pallar í Þvergilinu, göngubraut tilbúinn kl 16:00 í Skarðsdalsbotni ca 2 km. Veðurspá dagsins: Hægviðri og léttskýjað, en austan 5-10 m/s síðdegis og þykknar upp. Hægari vindur í nótt og á morgun og rigning af og til. Hiti 0 til 6 stig yfir daginn. Velkomin í fjallið Starfsfólk  

Sunnudaginn 3. apríl opið kl 10-16

Siglfirsku alparnir eru opnir í dag frá kl 10-16, veðrið kl 08:00 WSW 2-4m/sek, frost 1 stig og heiðskírt, færið er troðinn þurr snjór s s frábært veður og færi. Veðurspá dagsins: Hægviðri, en austlæg átt 3-8 m/s á morgun. Bjart að mestu og hiti 0 til 5 stig yfir daginn.  

Laugardaginn 2. apríl opið kl 10-16

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 10-16, veðrið kl VNV 3-6m/sek, slydda og alskýjað, færið er troðinn blautur snjór á neðstasvæðinu en er töluvert þurrari á T-lyftusvæði. Á svæðinu kl 14:30 er um 400 manns, það stefnir í mjög góðan dag á morgun, það er góð veðurspá fyrir morgundaginn.  Veðurspá dagsins: Fremur hæg breytileg átt og slydda, en þurrt að kalla síðdegis. Hægviðri í nótt og á morgun og skýjað með köflum. Hiti 0 til 5 stig að deginum. Velkomin í fjallið Starfsfólk