Föstudaginn 8. apríl opið kl 15-19

Við Neðstu-lyftu í apríl 2011
Við Neðstu-lyftu í apríl 2011

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 15-19, veðrið kl 14:00 VSV 4-10m/sek, hiti 6 stig og alskýjað, færið er troðinn þurr og blautur snjór það hefur snjóað aðeins hjá okkur, mjög gott færi fyrir alla, öll svæði verða opin í dag.

Hólabraut, Bobbbraut, pallar í Þvergili og göngubraut í Skarðsdalsbotni ca 2 km.

Veðurspá dagsins: Suðvestan og sunnan 5-13 m/s og úrkomulítið, hiti 5 til 12 stig í dag en heldur hlýrra á morgun.

Síðasta skiptihelgi fyrir vetrarkortshafa 9-10 apríl

Velkomin í fjallið

Starfsfólk