Fréttir

Þriðjudaginn 19. apríl opið kl 13-19

Svæðið kl 15:30 það er of hvasst á Búngusvæði lokað eins og er, en það er gott á öðrum svæðum. Á svæðinu núna kl 14:30 eru komin um 300 manns í ágætu veðri, veðrið kl 14:30 vestan 2-7m/sek, frost 1 stig og léttskýjað. Svæðið er opið í dag frá kl 13-19, veðrið kl 09:00 sunnan gola, frost 2 stig og heiðskírt, færið er troðin nýr snjór s s frábært veður og færi, öll svæði eru opin. Hólabraut, Bobbbraut, Pallar og mart fleira, göngubraut tilbúinn kl 14:00 í Skarðsdalsbotni. Fróðleiksmoli dagsins: Illviðrishnjúkur er um 900 metrar og er hægt að ganga upp á hann fyrir góða skíðamenn og renna sér niður gilin fyrir neðan og alveg að Skíðaskálanum, frábær ferð fyrir góða skíðara. Velkomin í fjallið Starfsfólk  

Mánudaginn 18. apríl búið að loka í dag vegna veðurs

Búið að lokað skíðasvæðinu í dag vegna veðurs, veðrið kl 17:00 vestan 10-16m/sek, éljagangur og frostmark, opnum á morgun kl 13-19, nýjar upplýsingar kl 10:00. Sjáumst hress á morgun Starfsfólk  

Mánudaginn 18. apríl opið kl 13-19

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 13-19, veðrið kl 11:30 austan gola, hiti 1 stig og léttskýjað, færið er troðinn blautur og þurr snjór í bland. Öll svæði er opin. Ath. símsvari (878-3399) er bilaður í augnablikinu, það er verið að finna út úr því. Veðurspá dagsins: Norðan 3-10 m/s og snjókoma, en vestan og norðvestan 8-13 með éljum seint í kvöld. Suðvestan 5-10 á morgun og dálítil él. Hiti nærri frostmarki. Upplýsingar eru ávallt uppfærðar inn á mbl.is og textavarp.is http://www.mbl.is/mm/frettir/skidasvaedi.html og textavarp.is  http://www.textavarp.is/544 Velkomin í fjallið Starfsfólk  

Sunnudaginn 17. apríl opið kl 10-16

Skíðasvæðið er opið í dag frá kl 10-16, veðrið kl 13:00 SSA 3-6m/sek, frost 1 stig og heiðskírt s s glaða sól á svæðinu, færið er unnið harðfenni í bland við nýjan snjó mjög gott færi fyrir alla, öll svæði eru opin. Göngubraut tilbúin kl 13:00 í Skarðsdalsbotni Veðurspá dagsins: Sunnan 8-13 m/s og dálítil slydda eða snjókoma með köflum, en norðvestan 5-10 og rigning á morgun. Hiti kringum frostmark, en hlýrra á morgun.   Upplýsingar eru ávallt uppfærðar inn á mbl.is og textavarp.is http://www.mbl.is/mm/frettir/skidasvaedi.html og textavarp.is  http://www.textavarp.is/544 Velkomin í fjallið Starfsfólk

Laugardaginn 16. apríl opið kl 10-16

Skíðasvæðið er opið í dag frá kl 10-16, veðrið kl 13:30 SV 3-10m/sek, hiti 1 stig og élagangur, færið er unnið harðfenni mjög gott færi fyrir alla og eru brekkurnar eru eins og flauel, öll svæði eru opin, Hólabraut, Bobbbraut og Pallar í Þvergili. Veðurspá dagsins: Hæg suðlæg átt og snjókoma með köflum, en suðvestan 8-13 m/s og léttir til undir hádegi. Hiti 3 til 8 stig að deginum, en vægt frost í nótt. Upplýsingar eru ávallt uppfærðar inn á mbl.is og textavarp.is http://www.mbl.is/mm/frettir/skidasvaedi.html og textavarp.is  http://www.textavarp.is/544 Velkomin í fjallið Starfsfólk

Föstudaginn 15. apríl lokað í dag vegna hvassviðris

Skíðasvæðið verður lokað í dag vegan hvassviðris, veðrið kl 15:20 SV 4-15m/sek og 20-25m/sek í hviðum, opnum á morgun kl 10:00 nýjar upplýsingar á morgun kl 08:30. Starfsfólk Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 16-19, veðrið kl 13:30 SV 6-20m/sek, 2 stigs frost, lítisháttar él og léttskýjað, færið er unnið harðfenni gott færi fyrir alla, öll svæði verða opin, það er góður snjór í öllum brekkum. Upplýsingar eru ávallt uppfærðar inn á mbl.is og textavarp.is http://www.mbl.is/mm/frettir/skidasvaedi.html og textavarp.is  http://www.textavarp.is/544 Hólabraut, Bobbbraut og Pallar í Þvergili. Veðurspá dagsins: Sunnan og suðvestan 8-13 og él. Hægari suðlæg átt í kvöld og slydda eða snjókoma með köflum. Suðvestan 8-13 og él undir hádegi á morgun. Hiti um eða yfir frostmarki. Velkomin í fjallið

Fimmtudaginn 14. apríl það verður lokað í dag

Skíðasvæðið verður lokað  í dag vegan vinds og aðstæðna, veðri kl 12:00 SV 4-15m/sek og 15-25m/sek í hviðum , hiti 4 stig, færið er mjög mjúkt, erum að moka í Neðstasvæðið og það mun taka okkur allan daginn, en það verður allt tilbúið á morgun kl 14.00, nýjar upplýsingar um kl 10:00. Veðurspá dagsins: Sunnan og suðvestan 8-13 og skúrir, en síðar él. Hiti 2 til 6 stig, en um eða yfir frostmarki í nótt og á morgun. Starfsfólk  

Miðvikudaginn 13. apríl opið kl 15-19

Skíðasvæðið er opið í dag frá kl 15-19, veðrið kl 14:30 logn, hiti 3 stig en léttskýjað, færið er nokkuð mjúkt á Neðstasvæðinu og neðrihluta T-lyftusvæðis en mjög gott á Búngusvæði og er góður snjór á Búngusvæði og T-lyftusvæði en fara þarf varlega á Neðstasvæði, erum að vinna í því að moka snjó á Neðstasvæðið það mun verða mjög gott næstu daga. Það verður nægur snjór í Páskavikunni og allir sem vilja komast á skíða um hátíðina verður að ósk sinni. Velkomin í fjallið á Sigló Starfsfólk  

þriðjudagur 12.apríl,lokað í dag vegna vinds og aðstæðna

Skíðasvæðið verður lokað í dag vegna vinds og aðstæðna.

Mánudaginn 11. apríl opið kl 16-19

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 16-19, veðrið kl 13:00 SSV 3-13m/sek, hitastig 0, og heiðskírt, færið er unnið harðfenni ágætis færi í öllum brekkum en það þarf að fara varlega á Neðstasvæðinu. Veðurspá í dag og á morgun: Suðvestan 8-15 m/s. Heldur hægari á morgun. Él og hiti 0 til 5 stig. Velkomin í fjalllið Starfsmenn   Góðan daginn gott skíðafólk, stefnum á að opna í dag kl 16:00, veðri kl 09:00 SSW 5-25m/sek og svo kemur hann með ANA 5-25m/sek , 1 sigt frost og heiðskírt en svona er nú veðráttan í Skarðsdalnum, þetta er nú það sem er svo gaman að eiga við maður veit aldrei neitt fyrir fram, en veðrið á að ganga niður síðdegis, nýjar upplýsingar kl 13:00 Nú nálgast Páskahátíðin í Fjallabyggð Starfsfólk