Fréttir

Fimmtudaginn 30.mars opið 14-20

Opið í dag frá kl 14-20 Veðrið kl 18:00 A gola, hiti 2  stig og heiðskírt. Færið er troðinn þurr snjór og eru 8 skíðaleiðir klárar. Velkomin í Skarðsdalinn Starfsmenn

Miðvikudaginn 29. mars opið 14-19

Opið í dag frá kl 14-19. Veðrið kl 17:00 logn, hiti 1 stig 200 mhs en hiti 2 stig við sleppingu á Búngulyftu 650 mhs, alskýjað og er þoka í efrihluta svæðisins. Færið er þur snjór og er mjög gott færi í öllum brekku, en 8 skíðaleiðir eru klárar. !!Breiðar og góður snjór í öllum brekkum!! Ath. það verður opið til kl 20:00 á morgun Velkomin í Skarðsdalinn Starfsmenn

Þriðjudaginn 28.mars opið 14-19

Opið í dag frá kl 14-19 Veðrið er ASA 2-6m/sek, frost 2 stig og er léttskýjað, færið er troðinn þurr snjór og er mjög gott færi í öllum brekkum. 8 skíðaleiðir klárar. Velkomin í Skarðsdalinn Starfsmenn

Mánudaginn 27. mars opið 14-19

Opið í dag frá kl 14-19, veðrið kl 09:30 austan gola, hiti  2 stig og léttskýjað, færið er troðinn þurr snjór en það snjóaði 10 sm í gær og er færi mjög gott í troðnum brekkum en 8 skíðaleiðir eru klárar. !!Bendi á það að það eru veik snjóalög fyrir þá sem eru að ganga á fjöll hér á Tröllaskaganum!! Nánari upplýsingar inn á vedur.is Velkomin í Skarðsdalinn Starfsmenn

Sunnudaginn 26. mars opið 10-16

Opið í dag frá kl 10-16 Veðrið kl 10:00 er logn, hiti 1 stig og er lítilsháttar éljagangur og verður norðan gola og éljagangur í dag, skyggnið er erfitt færið er troðinn þurr snjór og er mjög góður snjór í öllum brekkum en mjúkt. 5 skíðaleiður eru klárar. Velkomin í Skarðsdalinn Starfsmenn  

Laugardaginn 25. mars lokað /closed

Það verður lokað í dag vegna hvassviðris, SW 5-15m/sek og hviður 20-25m/sek og verður svona veður í dag. Á morgun verður komin sunnanátt og opnum við kl 10:00 Nýjar upplýsingar kl 08:00 á morgun Starfsmenn

Föstudaginn 24. mars lokað/closed

Það verður lokað í dag vegna hvassviðri SW 10-20 m/sek og hviður 20-40m/sek. Veðurútlit um helgina er þannig að á morgun laugardaginn verður SW stormur og lokað en sunnan átt á sunnudaginn og opið frá kl 10-16 Svona getur verið mikill harði á vindinum kl 05:19 í morgun var hviða 44,7m/sek í 300 metar hæð í dalnum góða. Nýjar upplýsingar á morgun kl 09:00 Umsjónarmaður

Fimmtudaginn lokað/closed

Það verður lokað í dag vegna vinds kl 13:00 er SSW 2-5m/sek og hviður eru 20m/sek , 7 stiga hiti og það er  vaxandi vindur þegar líður á daginn. Nýjar upplýsingar kl 10:00 á morgun Starfsmenn

Miðvikudaginn 22.mars opið 14-19

Opið í dag frá kl 14-19, veðrið kl 08:00 austan gola, frost 4 stig og lítilháttar éljagangur og mun birta til uppúr hádeginu. Færið er troðinn þurr snjór það hefur snjóað í nótt ca 5-10 sm. Færið er flott fyrir alla.  !!Það eru veik snjóalög fyrir utan mertar skíðaleiðir í 650-850 metra hæð ath. það þegar þið gangið á fjöll.!!  Nánari upplýsingar inn á þessari síðu veðurstofunar http://www.vedur.is/#syn=snjoflod   Velkomin í Skarðsdalinn Starfsmenn

Þriðjudaginn 21. mars opið 14-19

Opið í dag frá kl 14-19, veðrið kl 14:00 austan gola, frost 2 stig og léttskýjað og mun sú gula koma í dalinn í dag. Færið er troðinn þurr snjór. 8 skíðaleiðir klárar.  !!Það eru veik snjóalög fyrir utan mertar skíðaleiðir ath. það þegar þið gangið á fjöll.!! Velkomin í Skarðsdalinn Starfsmenn