Fréttir

Föstudaginn 29. apríl opið/open

Svæðið verður opið í dag frá kl 14-18, veðrið kl 14:00 logn, hiti 4 stig, léttskýjað og sú gula að sýna sig aðeins. Færið er troðinn nýr blautur snjór. Opnum 4 lyftur en engar brekkur troðnar í efrihlutanum. Það hefur snjóað ca 30-40 cm síðustu 2 daga. Velkomin í Skarðsdalinn Starfsmenn

Fimmtudaginn 28. apríl lokað/closed

!!Hér kemur greinagerð um stöðu mála!! Það verður lokað í dag/it is closed today, stefnum á að opna á morgun kl 14-18 og um helgina kl 11-16 báða daga, en nú er vetur hjá okkur og hefur snjóað um 15- 30 cm á svæðinu. Veðrið lítur þannig út að það er mögulega gluggi á morgun föstudaginn á milli 15-18 og um helgina er möguleiki á ágætu veðri á milli 12-16 en ekki mikil sól, þetta er í veðurkortunum núna kl 10:00 í dag. S s það gengur á með úrkomu og birtir eitthvað inn á milli, ég gæti skrifað endalaust um veðurútlitið með hinum og þessum möguleikum, en eitt er víst að það norðanátt í kortunum til 7 maí, þannig að veturinn hér fyrir norðan er 8-9 mánuðir sem flestir hljóta að vera ánægðir með. Svona til fróðleiks erum við að stiðjast við þessi veðurkort vedur.is, yr.no, belgingur.is, wetterzentrale.de og svo veðurstöðvar út um allt hér á norðurlandi, þetta er svo gaman því ekkert af þessu er 100% kannski 50-70% öruggt. Sjáumst hress Starfsmenn

Mánudaginn-miðvikudaginn 25-27 lokað/closed

Skíðasvæðið verður lokað frá 25-27. apríl, opnum svæðið aftur 28. apríl. Minni á að opið verður næstu 3 helgar.   25.apr Mánudagur Lokað   26.apr Þriðjudagur Lokað   27.apr Miðvikudagur Lokað   28.apr Fimmtudagur kl 14-18   29.apr Föstudagur kl 14-18   30.apr Laugardagur kl 11-16   1.maí Sunnudagur kl 11-16   5.maí Uppstiningardagur kl 11-16   6.maí Föstudagur kl 13-18  7.maí Laugardagur kl 10-16 Super Troll Ski Race  8.maí Sunnudagur kl 11-16  14.maí Laugardagur kl 10-16 Skarðsrennsli  15.maí Hvítasunnudagur kl 11-16 Síðasti opnunardagur   Umsjónarmaður

Sunnudaginn 24. apríl opið 11-16

Opið í dag frá kl 11-16, veðrið kl 11:00 NW gola, hiti 4 stig og alskýjað, færið er troðinn vor snjór og er töluvert mjúkt færi á öllu svæðinu. það verður mjög gott utanbrautarfæri í dag. Velkomin í Skarðsdalinn Starfsmenn

laugardaginn 23. apríl lokað/closed

Kl 12:00 Það verður lokað í dag vegna hvassviðris, betra veður á morgun en það verður opið á morgun frá kl 11-16. Opnun er í skoðun, nýjar upplýsingar kl 12:00. Veðrið kl 11:00 SW 10-15m/sek og hviður 20m/sek þannig að við getum eki keyrt lyftur í þessum vindi, en miðað við veðurkortin á að lægja og birta til um hádegið.  Umsjónarmaður

Enginn titill

Föstudaginn 22. apríl opið/open 13-18

Opið í dag frá kl 13-18, veðrið kl 09:00 WNW gola, hiti 1 stig og léttskýjað, færið er troðinn blautur snjór en er þurrara eftir því sem ofar kemur.  Göngubraut á Hólssvæði tilbúin kl 13:00, 3 km hringur Velkomin á skíði í dag Starfsmenn

Sumardaginn fyrsta opið 10-16

Gleðilegt sumar.  Kl 15:00 lokað vegna hvassviðris opnum á morgun kl 13-18 Kl 14:30 erum eingöngu að keyra Neðstulyftu, það er of mikill vindur SW 10-17m/sek Opið í dag frá kl 10-16. Veðrið kl 11:30 SW 3-13m/sek, hiti 2 stig og léttskýjað, mögulega vaxandi vindur þegar líður á daginn, færið er troðinn þurr snjór, það hefur aðeins skafið nýjan snjó yfir brekkurnar.  Erum að keyra 3 lyftur það er of hvasst fyrir Búngulyftu. Velkomin í Skarðsdalinn Starfsmenn

Miðvikudaginn 20. apríl opið 14-18

Opið í dag frá kl 14-18. Veðrið kl 09:00 WNW 5-12m/sek en það er hvassara á toppnum, hiti 2 stig og léttskýjað, færið er troðinn blautur snjór.  Velkomin í Skarðsdalinn Starfsmenn  

Þriðjudaginn 19. apríl lokað/closed

Lokað í dag, opnum á morgun. Nýjar upplýsingar kl 10:00 á morgun miðvikudaginn 20. apríl. Minni ykkur á skíðagestir góðir að svæðið verður opið til 1. maí og tvær helgar í maí 5-8. maí Super Troll og 14-15. maí Skarðsrennsli. Sjáumst hress