Fréttir

Opið í dag föstudaginn 16. janúar

Opið verður í dag frá kl 14-20, veðrið er mjög gott logn, 0c° við neðstasvæðið en -1c° á efrasvæði, það er þoka á öllu svæðinu. Allar lyftur opnar. Gönguspor við Hól Velkomin á skíði Starfsmenn

Opið í dag fimmtudaginn 15. janúar

Opið verður frá kl 16-21, veðrið hér er NA-5-8 -1c°, alskýjað, færið er mjög gott., allar 3 lyfturnar verða opnar.   Velkomin í fjallið. Starfsmenn

Opið í dag miðvikudaginn 14. janúar

Það verður opið í dag frá kl 16-20, bæði færi og veður er eins og gerist best, logn, -2c° og léttskýjað, færið troðinn nýr snjór. Lyftur opnar Neðsta-lyft, T-lyfta og Búngu-lyfta Velkomin í fjallið Starfsmenn      

Opið í dag þriðjudaginn 13. janúar

Opið verður í dag frá kl 16-20, veðrið og færi er mjög gott, S-gola, -6c° og heiðskírt, færi er frábært fyrir alla , endilega að drífa sig í fjallið. Gönguspor við Hól. Lyftur opnar Neðsta-lyfta og T-lyfta Starfsmenn  

Opið í dag mánudaginn 12. janúar

Opið verður í dag frá kl 16-20, veðrið í fjallinu er mjög  gott logn, -3c° og hálfskýjað, færið er nýr troðinn snjór mjög gott færi fyrir alla. Það er gönguspor við Hól Lyftur opnar Neðsta-lyfta og T-lyfta Velkomin í fjallið Starfsmenn  

Opið í dag sunnudaginn 11. janúar

Opið verður í dag frá kl 12-16 veðrið á neðstasvæði er ágætt NA 3-8, -3c° og skýjað, á efrasvæði er NA-8-13, -5c° og ekki gott skyggni, það hefur snjóað töluvert hjá okkur og er verið að vinna í brekkum. Við opnum neðstu-lyftu eingöngu í dag. Starfsmenn  

Lokað í dag laugardaginn 10. janúar

Lokað verður í dag vegna veðurs, en það jákvæða við lokunina í dag er að við erum að fá töluverðan snjó og verðum tilbúnir þegar veðrið gengur niður. Starfsmenn

Lokað í dag föstudaginn 9. janúar

Lokað verður í dag, það er of hvasst á T-lyftusvæði, opnun á morgun 10. janúar kl 11:00 Starfsmenn  

Lokað í dag

Það er lokað í dag. það er of hvasst á T-lyftusvæði og svo hefur tekið töluvert upp á neðstasvæði, stefnum á að opna á morgun föstudaginn 9. janúar kl 14:00. Starfsmenn  

Lokað í dag miðvikudaginn 7. janúar

Lokað verður í dag, það er of hvasst til  keyra lyftur, við opnum á morgun kl 16-21, nánari upplýsingar á morgun kl 12:00 í síma 878-3399 og á heimsíðu skard.fjallabyggd.is Starfsmenn skíðasvæðis.