Fréttir

Lokað í dag 23. janúar vegna veðurs

Það verður lokað í dag vegna veðurs, við opnum á morgun 24. janúar kl 11-17 Nýjar upplýsingar í 878-3399 og á heimasíðu um kl 10 á morgun. Starfsmenn  

Við stefnum á opnun í dag föstudaginn 23. janúar

Við stefnum á að opna í dag kl 16-19. veðrið í fjallinu er NA-10-15 og meira í hviðum, það er verið að vinna fjallið núna, það hefur bætt töluvert af snjó á svæðið og er nægur snjór á öllu svæðinu eins og hefur verið frá 2. nóvember nú í haust, nýjar upplýsingar verða í síma 878-3399 og á heimasíðu um kl 15:00 Starfsmenn  

Lokað í dag fimmtudaginn 22. janúar vegan veðurs

Lokað í dag vegna veðurs NA-15-20 m/sek og 30-35m/sek í hviðum. Starfsmenn

Opið í dag miðvikudaginn 21. janúar

Það verður opið frá kl 16-19, veðrið í fjallinu er ANA-5-10 m/sek og meira í hviðum 0c° á neðarsvæði, en ANA 8-15 m/sek og upp í 20 m/sek í hviðum og -1c° á efrasvæði, það verður bara neðsta-lyftan í gangi í dag frá kl 16-19   Starfsmenn  

Enginn titill

Lokað í dag þriðjudaginn 20. janúar

Lokað í dag vegna veðurs, það verða nýjar upplýsingar á netinu og í síma 878-3399 um kl 12 á morgun miðvikudaginn 21. janúar. Starfsmenn        

Opið verður í dag þriðjudaginn 20. janúar

Það verður opið frá kl -16-20 ef veður leifir, það er nokkuð hvasst núna um kl 12:30, nýjar upplýsingar vera á netinu um kl 15. Starfsmenn

Lokað í dag 19. janúar

Við verðum með lokað í dag en opnum á morgun 20. janúar kl 16-20, nánari upplýsingar á morgun kl 12 í síma 878-3399 og á netinu. Gönguspor við Hól klárt kl 15:00 Starfsmenn    

Opið í dag sunnudaginn 18. janúar

Opið verður í dag frá kl 11-17 og allar lyftur í gangi. Veðrið er mjög gott A-gola, -2c° og léttskýjað, færið í fjallinu er mjög gott, troðið þurr snjór í bland við nýjan snjó, gott færi fyrir alla og má benda á að á svæðinu er nægur snjór, í gær laugardaginn 17. janúar var fjöldi gesta á skíðum við mjög góðar aðstæður. Gönguspor við Hól Velkomin á skíði.    

Opið í dag laugardaginn 17. janúar

Opið verður í dag frá kl 11-17 veðrið er mjög gott SA-gola, -1c° og léttskýjað. Færið er mjög gott unnið harðfenni gott færi fyrir alla. Allar lyftur opnar, gönguspor við Hól harðfenni. Velkomin á skíði. Starfsmenn