Fréttir

Laugardaginn 17. maí Skarðsrennsli opið frá kl 11-16

Frábær dagur að baki en um 90 manns komu í fjallið í dag og kepptu 25 manns í Skarðsrennsli sem var um 3km braut og voru mörg læri á suðumarki þegar í mark var komið. Frábær endir á góðum vetri. Þakka öllu sem komu í Skarðsdalinn í vetur kærlega fyrir að heimsækja okkur í vetur. Stefnum á að opna á morgun ef veður verður í lagi. Sjáumst hress næsta vetur. Kl 09:00 veðrið  logn, sól og hiti 5 stig. Færið er töluvert mjúkt sumarfæri. Ath. Norðurlandskort eru fallin úr gildi. Skráning hefst miðvikudaginn 15. maí og er mjög einföld senda tp á egillrogg@simnet.is og svo bara skrá sig á staðnum. Veðurútlit er mjög gott fyrir laugardaginn SA gola og flott. Skíðasvæðið verður lokað til 17. maí en þá verður opið og Skarðsrennsli fer fram kl 13:00. Grill á eftir. Gjaldi í fjallið er kr 2.000.- fyrir fullorðna og kr 700.- fyri börn og að sjálfsögðu gilda útgefin vetrarkort í Skarðsdalnum. Vegleg verðlaun fyrir 3 fyrstu  1. Verðlaun. Vetrarkort 2014-15 fyrir 5 manns. (2 fullorðnir+3börn) Út að borða á Kaffi Rauðku. Morgunverður  í Aðalbakaríi  2. Verðlaun. Vetrarkort 2014-15 fyrir 4 manns. (2 fullorðnir+2börn) Pizza á Allanum  3. Verðlaun. Vetrarkort 2014-15 3 manns.(2 fullorðnir+1barn) Pizza á Torginu 4. Verðlaun. Vetrarkort 2014-15 fyrir 2 fullorðna 5. Verðlaun. Vetrarkort 2014-15 fyrir 2 fullorðna 6. Verðlaun. Vetrarkort 2014-15 fyrir 2 fullorðna Skarðsrennsli er 3 km braut sem byrjar í fjallaskarði (Hrólfsvallardalur) fyrir ofan Búngulyftu og niður Miðbakka og yfir T-lyftusvæðið og til baka niður að Skíðaskála. Vegleg verðlaun fyrir fyrstu 3, en tímataka fer fram með skeiðklukku. Bæði fyrir skíði og bretti. Fylgist með okkur hér á heimasíðu og facebook Umsjónarmaður skíðasvæðis Egill Rögg

Laugadagur 3.Maí Opið frá 10-16.

Það verður opið í dag frá 10-16. Velkomin á skíði. Strafsmenn.

Föstudaginn 2. Mai Lokað.

Það verður lokað Föstudaginn 2 Mai. Nýjar upplýsingar Laugadaginn 3. Mai.

Fimmtudaginn 1. maí opið kl 11-15

Opið í dag frá kl 11-15. Veðrið kl 08:30 SA gola, hiti 2 stig og heiðskírt. Færið er troðinn þurr snjór. Allt troðið í gær og það var frost í nótt. Flott veður og flott færi. Ath. Norðurlandskort gilda ekki lengur. Þá daga sem opið verður fram á vor er tekið gjald af öllum nema þeim sem eiga útgefin Vatrarkort í Skarðsdalnum. Vasakort gilda hér og er hægt að fylla á þau. Velkomin í siglfirsku alpana Starfsmenn

Miðvikudaginn 30. apríl lokað. Opið 1. maí kl 11-15

Lokað í dag en opið morgun 1. maí kl 11-15. Ath. Norðurlandskortin gilda ekki lengur. Þá daga sem opið verður fram á vor er tekið gjald af öllum nema þeim sem eiga útgefin Vatrarkort í Skarðsdalnum. Vasakort gilda hér og er hægt að fylla á þau. Velkomin á Sigló Umsjónarmaður

Enginn titill

Miðvikudaginn 30. apríl lokað. Opið 1. maí kl 11-15

Lokað í dag en það verður opið á morgun 1. maí kl frá kl 11-15. Ath. Norðurlandskort eru fallin úr gildi. Skidatakerfið bíður uppá að greiða tímagjald. Fyllum á öll vasakort. Allir greiða aðgangsgjald þá daga sem opið er fram á vor, en að sjálfsögðu gilda Vetrarkort sem gefin eru út í Skarðsdalnum. Velkomin á Sigló Umsjónarmaður

Mánudaginn 28. apríl opið kl 11-16

Næst opnum við fimmtudaginn 1. maí Kl 11-15 Opið í dag frá kl 11-16. Veðrið kl 09:30 NNW gola, frost 2 stig, léttskýjað og sú gula að brjótast í gegn. Færið er unnið harðfenni.  Flott dagskrá framundan í Skarðsdalnum.  Skíðasvæðið verður opið þessa daga fram á vor.  Fimmtudaginn 1. maí opið kl 11-15  Laugardaginn 3. maí opið kl 10-16 Fjallaskíðamót SSS elsta skíðafélag landsins Sunnudaginn 4. maí opið kl 08-16 Bikarmót SKÍ 16 ára og eldri.  Laugardaginn 17. maí opið kl 10-16 Skarðsrennsli, 3 km braut, vegleg verðlaun. Sunnudaginn 18. maí opið kl 10-16 Síðasti opnunardagur. Velkomin í Skarðsdalinn Starfsmenn

Sunnudaginn 27. apríl opið kl 11-15

Ath. aukaopnun á morgun 28. apríl frá kl 10-16 Opið í dag frá kl 11-15. Veðrið kl 08:15 NNW gola, frost 3 stig og alskýjað. Færið er unnið harðfenni.  Flott dagskrá framundan í Skarðsdalnum Skíðasvæðið verður opið þessa daga fram á vor.  Fimmtudaginn 1. maí opið kl 11-15  Laugardaginn 3. maí opið kl 10-16 Fjallaskíðamót SSS elsta skíðafélag landsins Sunnudaginn 4. maí opið kl 08-16 Bikarmót SKÍ 16 ára og eldri. Laugardaginn 17. maí opið kl 10-16 Skarðsrennsli, 3 km braut, vegleg verðlaun.  Sunnudaginn 18. maí opið kl 10-16 Síðasti opnunardagur. Velkomin í fjallið Starfsmenn

Laugardaginn 26. apríl opið kl 10-15

Kl 14:15 höfum við lokað svæðinu vegna þoku. Takið frá 17. maí þá er Skarðsrennsli ca 3 km braut. Vegleg verðlaun. Opið í dag frá kl 10-15. Veðrið kl 10:30 SA gola, hiti 2 stig, alskýjað og lítilsháttar þokusúld.  Vorfæri í öllum brekkum.  Skíðasvæðið verður opið þessa daga fram á vor.  Sunnudaginn 27. apríl opið kl 10-16  Fimmtudaginn 1. maí opið kl 11-16  Laugardaginn 3. maí opið kl 10-16  Sunnudaginn 4. maí opið kl 10-16  Laugardaginn 17. maí opið kl 10-16 Skarðsrennsli  Sunnudaginn 18. maí opið kl 10-16 Síðasti opnunardagur Velkomin í fjallið í dag Starfsmenn