Fréttir

Það verður opið á morgun 18 nóvember

Það verður opið á morgun frá kl 13:00-18:00 ef veður leifir, nánari upplýsingar verða á netinu og í upplýsingasíma 878-3399 á morgun Verð í lyftur á morgun fyrir grunnskólabörn kr. 300.- árskort 2008 gilda í lyftur. Fjölmennum í fjallið með nesti, en búnað getið þið fengið lánaðan frítt. Starfsmenn  

Opið í dag mánudaginn 17 nóvember

Opið verður í dag 17 nóvember frá kl 13:00-16:00 Veður SV 5-10 -1c°, éljagangur Lyftur opnar Neðsta-lyfta Verð í lyftur er 300,- fyrir þá sem ekki eru með árskort.  

Lokað í dag mánudaginn 17 nóvember

Það var meiningin að opna kl 13-16 í dag, en eins og staðan er núna kl 10:45 er ekki hægt að opna, en það koma nýjar upplýsingar um kl 12:00 Veður SV 8-12 m/s og fer í hviðum upp í 18 m/s -1° éljagengur.  

Lokað í dag sunnudaginn 16.nóvember

Lokað í dag vegna veðurs

Opið í dag sunnudaginn 16 nóvember

Opið verður í dag frá kl 11:00-17:00 Veður SV 6-9m en 9-15m í hviðum, -1°, hálfskýjað, troðinn nýr snjór, gott færi fyrir alla. Lyftur opnar Neðsta-lyfta. Því miður er of hvasst í T-lyftusvæði eins og er, við munum skoða það hvort við getum opnað T-lyftu eftir kl 12:00 Verið velkomin á svæðið

Opið í dag laugardaginn 15 nóvember

Opið verður í dag frá kl 11:00-17:00 Veður SV 5-7, -3°, hálfskýjað, troðinn nýr snjór Lyftur opnar Neðsta-lyfta og T-lyfta Gott færi fyrir alla, verið velkominn í fjallið.  

Frábær dagur í dag 14 nóvember

Frábær dagur í dag gott veður og færi eins og gerist best logn -2° og hálfgerður jólasnjór sem kom úr lofti og allir skemmtu sér mjög vel. Opnum á morgun laugardaginn 15 nóv kl 11:00, fjölmennum í Skarðið.  

Opið í dag föstudaginn 14 nóvember

Opið verður í dag frá kl 14:00-20:00 Veður Austan gola, -2°, skýjað, smá él Lyftur opnar Neðst-lyfta og T-lyfta Verðið velkomin á svæðið. 

Lokað í dag fimmtudaginn 13 nóvember

Því miður verðum við að hafa lokað í dag. Veður er NA 8-15m og skafrenningur Opið verður á morgun frá kl 14:00

Opið í dag fimmtudaginn 13 nóvember

Opið verður í dag 13 nóvember frá kl 16:00-20:00 Veður NA 6-10m, -3°, éljagangur, efra svæði NA 10-15m, -5°, skafrenningur Það er kominn töluverður nýr snjór og er verið að troð á full Lyftur opnar neðsta-lyfta