Fréttir

Sunnudaginn 17. janúar opið kl 11-16

Opið í dag frá kl 11-16, veðrið er SA gola, frost 3-6 stig og heiðskírt, færið er troðinn þurr snjór s s drauma veður og drauma færi. Göngubraut á Hólssvæði ca 2,5 km hringur. Nú í dag fer fram world-snow-day og er þessi dagur tileinkaður öllum börnum og allir út og leika sér í snjónum. Frítt í lyftur og skíðabúnaður fyrir öll börn, leikjabrautir og fjallakakó og fjallakaka. world-snow-day.com Sjáumst hress Starfsmenn skíðasvæðisins og Skíðafélags Siglufjarðar  

Enginn titill

Laugardaginn 16. janúar opið

Í dag verður opið frá kl 11-16, veðrið og færið er bara frábært hitastig er frá frostmarki við skíðaskálan 200mh og er 1 stigs frost við sleppingu á Búngulyftu 650m hæð, vindátt er sunnan 1-5m/sek og heiðskírt. Færið er troðinn þurr snjór og eru 7 skíðaleiðir klárar, bobbbraut og hólabraut bæði á Neðstasvæði og á T-lyftusvæði. Göngubraut tilbúin á Hólssvæði ca 2,5 km Veðurstöð er komin í lag. Velkomin á skíði í dag Starfsmenn

Föstudaginn 15. janúar opið kl 15-19

Opið í dag frá kl 15-19, veðrið er sunnan gola, frost 2-4 stig og léttskýjað. Færið er troðinn þurr snjór.  Fjallið er draumur núna og verður svo um helginna.   Göngubraut tilbúinn kl 15:00 á Hólssvæði. Minni á snjór um víða veröld, allir á skíði sunnudaginn 17. janúar. Sjáumst hress Starfsmenn

Fimmtudaginn 14. janúar opið kl 15-19

Opið í dag frá kl 15-19, veðrið er austan gola, frost 2-5 stig og heiðskírt. Færið er troðinn nýr snjór en það hefur snjóað ca 15 sm og hefur snjóða á svæðið ca 30 sm á síðustu tveimur sólahringum svo nú er flott færi í púðri á Búngusvæði og víðar. Veðurútlit er mjög gott næstu 4 daga, hægur vindur, frost og heiðríkja. Skíðakennsla fyrir byrjendur er um helgina og byrjar kl 13.00 og þarf að skrá sig í síma 893-5059 Göngubraut verður lögð á Hólssvæði um helgina. Velkomin á Sigló Starfsmenn

Miðvikudaginn 13. janúar opið kl 15-19

Opið í dag frá kl 15-19, veðrið kl 13.00 NNA 2-10m/sek, frost 2 stig og smá éljagangur. Færið er troðinn nýr snjór, en það hefur snjóað ca 10-25 cm á svæðinu. Velkomin í fjallið Fjallamenn

þriðjudaginn 12. janúar lokað

Lokað í dag, opnum á morgun kl 15:00 Sjáumst hress Starfsmenn

Mánudaginn 11. janúar opið kl 15-19

Opið í dag frá kl 15-19. veðrið er SSA gola, frost 5-8 stig og heiðskírt. Færið er troðinn þurr snjór.  Snjór um víða veröld er næsta sunnudag 17. janúar http://world-snow-day.com/en/wsd/Event_Locator/Iceland/Siglufjordur/World_Snow_Day_at_Skardsdalur Velkomin í fjallið  Starfsmenn

Sunnudaginn 10. janúar opið kl 11-16

Opið í dag frá kl 11-16, veðrið er SA gola, frost við skálan er 5 stig en við Búngulyftu topp er frostið 6,5 stig og er heiðskírt, færið er troðinn þurr snjór og er mjög gott færi í dag. 6 skíðaleiðir tilbúnar. World snow day sunnudaginn 17. janúar  http://world-snow-day.com   Velkomin í fjallið Fjallamenn

Laugardaginn 9. janúar opið kl 11-16

Opið í dag frá kl 11-16, veðrið er austan gola, frost 1 stig við skálan (200m) en 4 stig við sleppingu á Búngulyftu (650m) og er heiðskírt, færið er troðinn þurr snjór og er færið mjög gott. Flott veður og færi í Skarðsdalnum í dag. Skíðakennsla fyrir byrjendur í dag og á morgun, hefst kl 13:00. Panta í síma 893-5059 Velkomin í fjallið Fjallamenn