Fréttir

Laugardaginn 15. mars opið kl 10-16

Opið í dag frá kl 10-16. Veðrið kl 08:30 ASA gola, frost 5 stig, éljagangur og þannig að skyggnið er erfitt. Gott að vera með góð gleraugu. Færið er troðinn nýr snjór og mikið af honum. Takið daginn snemma. Velkomin í fjallið Starsfmenn

Föstudaginn 14. mars opið kl 14-19

Opið í dag frá kl 14-19. Veðrið kl 16:30 austan 3-6m/sek, frost 5 stig og smá éljagangur þannig að það er nýr snjór í öllum brekkum. Færið er troðinn þurr snjór, mjög gott færi fyrir alla. Opnum 2 lyftur í dag en stefnum á að opna 3 lyftur á morgun. Hálslyfta er biluð og verður það næstu 5 daga ca. Velkomin í fjallið. Starfsmenn Minni á aðgangskortin, nú þurfa allir að hafa kort til að fá aðgang í lyftur.

Fimmtudaginn 13. mars lokað vegna hvassviðris

Það verður lokað í dag vegna hvassviðris. Veðrið kl 13:00 SW 2-10m/sek og 15-30m/sek í hviðum. Það lítur mun betur út með veður næstu daga miðað við veðurspá. Nýjar upplýsingar á morgun kl 10:00 Umsjónarmaður

Miðvikudaginn 12. mars opið kl 15-19

Kl 15:00 Opið í dag frá kl 15-19. Veðrið kl 16:00 NNA gola, hiti 1 stig og lítilsháttar úrkoma. Kl 14:00 Opnun í skoðun nú er komin rigning og WSW 5-14m/sek. Nýjar upplýsingar kl 15:00. Umsjónarmaður. Opið í dag frá kl 15-19. Veðrið kl 12:00 SW 4-10m/sek, 5 stiga hiti og alskýjað. Færið er troðinn rakur snjór en er þurrari á T-lyftusvæði. Endilega að taka daginn snemma ef hægt er. Hálslyftan er biluð og verður það næstu 5-8 daga. Velkomin í fjallið Starfsmenn

Þriðjudaginn 11. mars lokað

Það verður lokað í dag. Opnum á morgun kl 15. Upplýsingar kl 10:00 á morgun. Umsjónarmaður

Mánudaginn 10. mars opið kl 15-19

Kl 13:00 Opið í dag frá kl 15-19. Veðrið er 13:20 SA gola, hiti 3 stig og alskýjað. Færið er troðinn þurr snjór og er mjúkt færi. Það hefur snjóað ca 30-50 cm í brekkurnar. Velkomin í fjallið  Erum með opnun í skoðun og stefnum á að opna kl 15-19. Veðurspá er mjög ótrygg Nýjar upplýsingar kl 13:00 Starfsmenn

Sunnudaginn 9. mars lokað

Í dag er lokað vegna veðurs. Veðrið kl 08:40 NA 5-15m/sek, töluverð úrkoma og lítið skyggni. Nýjar upplýsingar á morgun kl 10:00 Umsjónarmaður

Laugardaginn 8. mars opið kl 10-16

Opið í dag frá kl 10-16. Veðrið kl 08:30 SSW 2-6m/sek, frostmark og léttskýjað. Færið er troðinn þurr snjór. Opnum  3 lyftur. Hálslyfta er biluð.  Nú þurfum við að nota gömlu rennslis-leiðinna að Búngulyftu. Veðurspá er þannig að þeir sem ætla á skíði í dag ættu að mæta snemma. Göngubraut á Hólssvæði ca 3 km hringur. Velkomin á skíði Starfsmenn

Föstudaginn 7. mars opið 13-19

Munið eftir aðgangskortunum Opið í dag frá kl 13-19. Veðrið kl 16:00 S-gola, frost 1 stig og heiðskírt. Færið er troðinn nýr snjór, mjög gott færi fyrir alla. Púður um allan dal Göngubraut á Hólssvæði ca 3 km hringur. Stefnum á að opna allar lyftur á morgun. Velkomin í fjallið

Fimmtudaginn 6. mars lokað

Kl 15:00 lokað vegna hvassviðris. Miðað við veðurspá næstu 2 daga er útlitið mjög gott. Opnum á morgun kl 13-19 nýjar uplýsingar kl 10:00 á morgun. Umsjónarmaður KL 13:30 Opnun í skoðun vegna hvassviðris. SW 8-20m/sek Nýjar upplýsingar kl 15:00 Í dag verður opið frá kl 15-19. Seinkum aðeins opnun, vindur á að ganga niður þegar líður á daginn. Veðrið kl 11:00 SW 2-15m/sek, frost 2 stig og alskýjað. Færið er troðinn þurr snjór. Velkomin í fjallið Starfsmenn