Við opnum næstu helgi.

Það stefnir í þessa gleði.
Það stefnir í þessa gleði.

Nú er komið að því að opna, fyrsti opnunardagur verður laugardaginn 5. des

kl 10-16. Frítt verður fyrir alla fyrsta daginn.

Það hefur snjóað töluvert hjá okkur, höfum verið að vinna á öllum svæðum og snjór er mis mikill eftir svæðum, nánari upplýsingar þegar líður nær helginni.

Árskortasala er hafin, hægt er að kaupa þau í fjallinu og eða panta í síma/tölvupóst 893-5059/467-1806/egillrogg@simnet.is, greiða verður fyrir kortin fyrir 1. janúar 2010, verð á barnakorti er kr. 5.000.- , fullorðinskort kr. 11.000.-  , hjónakort kr 21.000.- , ath öll kort hækka 1. janúar um 2.000.- per stk.

Bendi á að árskort 2009 gilda til áramóta, framhaldsskólanemar og æfingakrakkar skíðafélaga fá árskortið 2010 á sama verði og börn og unglingar kr. 5.000.- til áramóta.

Sjáumst hress.

Starfsfólk.