Þriðjudaginn 29. des opið

Svona getur lífið verið dásamlegt.
Svona getur lífið verið dásamlegt.

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 13-18, veðrið kl 08:45  NA 4m/sek, éljagangur, frost 6 stig og alskýjað, færið er troðinn nýr snjór, mjög gott færi fyrir alla og allar lyftur opnar. Ath. neðstabrekkan er aðeins öðruvísi það þarf að renna sér niður veginn að skíðaskálnum en aðrar brekkur eru mjög góðar.

Minni á tilboð á árskortum, góður kostur til að stunda útiveru með allri  fjölskylduni í fjallaloftinu.

Velkomin á skíði starfsmenn.