Þriðjudaginn 16. desember opið kl 16-19

Opið í dag frá kl 16-19. Veðrið kl 15:00 SA gola, frost 4 stig og alskýjað. Færið er troðinn þurr snjór, flott brettafæri silkimjúkt. Frábært veður og færi. 


Opið verður næst á fimmtudaginn 18. des og laugardaginn 20. des. 


Ath skíðið eingöngu í troðnum brautum. Það er mjög stutt niður á grjót fyrir utan troðnar brautir.


Munið eftir tilboði á vetrakortum 2014-15 kr 21.000.- fullorðin og kr 8.000.- börn. Framhalds/háskólanemar kr 8.000.-


Þetta tilboð gildir til 24. desember og greiða þarf fyrir kortin í síðast lagi 24. desember. Áfylling inn á vasakortin fer fram í Skíðaskálanum. 

Ef kaupa þarf nýtt vasakort er verð á því kr 1.000.-


Umsjónarmaður