Sunnudaginn 6. janúar opið kl 10-16 Þrettándinn

Í dag verður skíðasvæðið opið frá kl 10-16, veðrið kl 12:45 sunnan gola, hiti 2-3 stig og heiðskírt, færið er unnið harðfenni.  4 lyftur keyrðar í dag.

Þessi dagur lítur mjög vel út gott veður og flott færi. Næstu daga er bara gott veður framundan s s sama veður blíðan til næsta sunnudags.

Í gær voru um 300 manns á skíðum og í dag er talan komin í 200 manns, góð helgi og takk fyrir komuna gestir góðir.

Velkomin í fjallið starfsmenn