Sunnudaginn 19. desember opið

Velkomnir á skíði
Velkomnir á skíði

Skíðasvæðið er opið í dag frá kl 11-16, veðrið kl 09:00 NA-6-10m/sek, frost 4 stig, smá éljagangur, við opnum kl 11 Neðstu-lyftu, það er verið að vinna á T-lyftusvæði, vonandi getum við opnað það svæði kl 12 og er meiningin i framhaldinu að koma inn Stálmasturbakka, en það er of hvasst á Búngutopp, en við stefnum á að opna Búngusvæðið á morgun.

Vetrarkortasala er í fullum gangi, hægt að kaupa þau í skíðaskálanum og einnig er hægt að hringja í síma 893-5059 eða senda tölvupóst á egillrogg@simnet.is og panta og leggja inn á reikning 1102-26-1254 Kt. 640908-0680 Valló

 Jólagjöfin í ár, hægt er að kaup eitt stakt  dagskort eða fleiri til að setja t d í jólakortið, gildir virkan dag jafnt sem helgi dag, verð á fullorðinskorti er kr 1.500.- og barnakorti kr. 500

Starfsfólk.