Sunnudaginn 15. apríl opið kl 10-16

Siglufjarðarskarð í allri sinni dýrð. Mynd tekin 13. apríl 2012
Siglufjarðarskarð í allri sinni dýrð. Mynd tekin 13. apríl 2012

Í dag verður opið kl 10-16, veðrið kl 09:30 logn, frost 2 stig, alskýjað og það er að birta. Allar brekkur troðnar í gærkveldi, það hefur snjóað ca 5-10 cm í allar brekkur, erum að troða Neðstasvæðið og T-lyfusvæði en munum ekki troða Búngusvæðið, mjög gott færi fyrir alla.

Ps. það verður stórsvigsbraut í Búngubakka. Miðbakki er inni á Búngusvæði svo það er gott pláss fyrir alla.

Sjáið endilega þetta myndband af skíðasvæðinu Skarðsdal, það gleður augað: http://hedinsfjordur.is/a-skidum-i-skidaparadis-siglfirdinga-myndband

Samkvæmt veðurspá á að létta til um hádegi:

Strandir og Norðurland vestra

Hæg breytileg átt og bjartviðri. Suðaustan 3-8 í kvöld en austan 5-10 á morgun og skýjað með köflum. Hiti 1 til 5 stig að deginum.
Spá gerð: 15.04.2012 06:33. Gildir til: 16.04.2012 18:00.

Velkomin í fjallið starfsmenn