Sunnudaginn 11. mars verður lokað vegna hvassviðris

Súlutoppar
Súlutoppar

Fjallbyggð heillar.

Nú líður að páskahátíðinni og þá er skíðasvæðið á Siglufirði mjög góður valkostur, það er mikið af góðu gistirými, flottir veitingastaðir, glæsileg söfn og skíðasvæðið er með breiðar og góðar brekkur og næg er fönnin um allt fjall. Það er flott að dvelja um Páska í Fjallabyggð. 

Hér til upplýsinga eru tölur yfir heimsóknir á heimasíðu skíðasvæðisins það sem af er mars mánuði:

01 mar 2012 139 640 6664 47.74 MB
02 mar 2012 218 941 12844 189.01 MB
03 mar 2012 195 816 9244 90.06 MB
04 mar 2012 283 1064 15589 198.13 MB
05 mar 2012 138 585 5644 60.94 MB
06 mar 2012 114 389 3546 58.01 MB
07 mar 2012 164 738 8745 89.14 MB
08 mar 2012 198 619 7784 134.26 MB
09 mar 2012 270 1025 15257 233.96 MB
10 mar 2012 226

Skíðasvæðið verður lokað í dag vegna hvassviðri, veðrið kl 08:00 WSW 4-20m/sek og hviður eru 30-35m/sek, frost 1 stig og alskýjað.

Svona til fróðleiks, þá fór vindhviða í nótt kl 00:54 í 51,9m/sek, þetta er það mesta sem við höfum séð á mælum hjá okkur í Skarðsdalnum.

Veðurspá er okkur ekki hagstæð í dag:

Suðvestan 15-23 m/s, en 13-20 undir hádegi. Ofankoma af og til. Lægir seint í nótt, fremur hægur vindur fram eftir morgundegi og úrkomulítið. Hiti kringum frostmark.
Spá gerð: 11.03.2012 06:41. Gildir til: 12.03.2012 18:00.

Upplýsingar um snjódýpt á svæðum: Neðstasvæði er 70-110 cm snjór, T-lyftusvæði 100-140 cm snjór og á Búngusvæði er 150-350 cm snjór.

Sjáið endilega þetta myndband af skíðasvæðinu Skarðsdal: http://hedinsfjordur.is/a-skidum-i-skidaparadis-siglfirdinga-myndband/

 Starfsmenn