Skírdagur 17. apríl opið 10-16

Frábær dagur að baki en um 800 manns komu í fjallið í dag, takk kærlega fyrir að velja Skarðsdalinn. Sjáumst hress næstu daga. Nýjar upplýsingar kl 08:00 í fyrramáli.


Opið í dag frá kl 10-16. Veðrið kl 08:30 logn, frost 3 stig, léttskýjað og sú gula er að brjótast í gegn.


Færið er unnið harðfenni en það snjóaði aðeins í brekkurnar, mjög gott færi fyrir alla.


Opnum allar lyftur. Það eru 2 leikjabrautir, við Neðstu-lyftu og á T-lyftusvæði. leikvöllur fyrir þau yngstu er við Skíðaskálan. Hólar og pallur á T-lyftusvæði.


Göngubraut á Hólssvæði tilbúinn kl 11:00


Velkomin á skíði

Starfsmenn