Skíðasvæðið opnar á morgun laugardaginn 5. des kl 12:00

Þetta er lífið.
Þetta er lífið.

Skíðasvæðið opnar á morgun kl 12:00, við opnum Neðstu-lyftu og T-lyftu, ég vil benda skíðafólk á að fara varlega í neðstubrekkunni, það er nýr snjór í öllum brekkum, nánari upplýsingar á morgun um kl 10:00.

Boðið verður upp á piparkökkur, kaffi og gos, Fjallabyggðaíbúar og aðrir gestir fjölmennið í fjallið.

Árskortasala er hafin, hægt er að kaupa þau í fjallinu og eða panta í síma/tölvupóst 893-5059/467-1806/egillrogg@simnet.is, greiða verður fyrir kortin fyrir 1. janúar 2010, verð á barnakorti er kr. 5.000.- , fullorðinskort kr. 11.000.-  , hjónakort kr 21.000.- , ath öll kort hækka 1. janúar um 2.000.- per stk.

Bendi á að árskort 2009 gilda til áramóta, framhaldsskólanemar og æfingakrakkar skíðafélaga fá árskortið 2010 á sama verði og börn og unglingar kr. 5.000.- til áramóta.

Sjáumst hress.